Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 7

Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 7
Siðfrœði og störf heibrigðisstétta Björn Björnsson, prófessor Ritstjórn Læknanemans fór þess á leit við mig, að ég gerði nokkra grein fyrir hugmyndum mínum um þörf á kennslu í siðfræði við læknadeild Háskóla lslands. Tilefni þessarar beiðni tel ég vera erindis- korn, er ég flutti á fundi Orators í haust s.I. um líkn- ardauða (evthanasia), en þá hvatti ég til þess í inn- gangi, að hafin verði kennsla í medisínskri siðfræði í læknadeild. Nú hlýt ég að viðurkenna og hiðja velvirðingar á þvi um leið, að ég er alls óviðbúinn að gera ítar- lega grein fyrir nákvæmri skipan slíkrar kennslu. Slík greinargerð, yrði hún einhvern tíma samin, krefst ] aess, að hafið verði samstarf lækna og sið- fræðinga til glöggvunar á viðfangsefninu. Mín orð her því að skoða sem þankabrot, sem einungis er ætlað að vekja athygli á nokkrum sviðum, þar sem læknisfræði og siðfræði mætast. Öhætt mun að fullyrða, að athygli manna hefur á síðari tímum beinzt í vaxandi mæli að ýmsum sið- i'ænum viðhorfum. sem lúta að framþróun lækna- vísindanna. Sumpart má rekja þessa athygli til af- stöðu manna til vísinda í víðtækum skilningi, þar sem greinilega má merkja endurmat á fyrri afstöðu, ef ekki hugarfarsbreytingu. Liðin er sú tíð, að menn trúi í blindni á nánast vélræna framvindu vísinda til æ meiri fullkomnunar og fegurra mannlífs. Æ Ijós- ara verður, að vísindin geta hæglega vaxið mannin- um yfir höfuð, og sannast í því efni orðtakið „veldur hver á heldur“. Sé ekki farið að með gát, getur þetta tæki, vísindin, sem sniðið var til að létta undir uieð manninum í lífsstríðinu, orðið að verkfæri dauðans, sem ógnar öllu lífi manns og náttúru. Eðlilega hafa þessi nýju viðhorf vakið spurningar um siðferðislega ábyrgð þeirra, sem visindin stunda, sem og um tilgang vísindalegrar iðkunar. Vísinda- mennirnir sjálfir láta sér heldur ekki lengur nægja að leika hlutverk hins hlutlausa fræðimanns, en ætla öðrum að kveða á um félagslegt eða siðrænt gildi þess starfs, sem þeir inna af hendi. Nú gerist það æ oftar, að vísindamenn hafi sjálfir frumkvæðið og hvetja lil umræðna um siðrænt gildismat í þeim vísindum, sem þeir stunda. Megi þannig greina sí- aukinn áhuga á gildi siðrænna viðhorfa með tilliti til vísinda og tækni almennt. þá kemur það vart á óvart, þótt hið sama gildi gagnvart þeirri grein vís- inda, sem nefnd eru læknavísindi. Raunar mætti bú- ast við, að áhuginn innan þeirrar greinar væri meiri en víðast annars staðar, því að læknavísindi sem vísindi um manninn og heilbrigði hans hljóta að vekja spurningar um mannlegt eðli og manngildi, en slíkar spurningar eru að minnsta kosti lil hálfs af siðrænum toga spunnar og verður ekki svarað án skírskotunar til siðrænna viðmiðana. Læknirinn er einnig í þeirra sérstöðu, þótt aðrir hópar vísinda- manna komi þar einnig til greina, svo sem sálfræð- ingar, að vísindaiðkun hans beinist ekki að dauðum hlutum, heldur að lifandi fólki, sem hann hefur við náin persónuleg samskipti. Óll samskipti einstak- inga spegla beint eða/og óbeint siðrænt gildismat, en þar af leiðir, að á þeim, sem hafa persónuleg samskipti að atvinnu í einni mynd eða annarri, hvíl- ir sú ábyrgð að gera sér sem ljósasta grein fyrir þeim siðrænu þáttum, sem setja svip sinn á slík sam- skipti. Þar sem það er tilgangurinn með þessu greinar- korni að vekja athygli á nokkrum sviðum, þar sem læknisfræði og siðfræði mætast, virðist mér eðlilegt að nefna fyrst þennan veigamikla þátt í starfi læknis- ins, sem lýtur að samskiptum hans við þá einstak- linga, sem til hans leita. Enginn vafi er á því, að þessi samskipti höfða á ýmsa lund til siðferðislegs mats læknisins. Augljóst dæmi þess eru þau tilvik, þegar læknir er af hálfu sjúklings krafinn sagna um ástand silt og batahorfur. Ef um alvarlegan sjúk- dóm er að ræða, ber þá lækninum að skýra frá því umbúðalaust, eða hefur hann siðferðislegan rétt til læknaneminn 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.