Læknaneminn - 01.03.1976, Síða 17
Mynd 3. Virk, sérhæfð ónœmisaðgerð: Autologous œxlisjrum-
ur eða lausn œxlismótejnavaka, gejið á marga innkomustaði,
lil að auka i heild sérhæjða ónæmissvörun.
gegn sýklinum. Bezta notkun BCG er líklega með
rispun í yfirborðslög húðar, eSa varlegri innspýt-
ingu í yfirborðsæxli, samfara sérhæfðri ónæmismeð-
ferð. Viss húðæxli virðast mjög næm fyrir ósér-
hæfðri ónæmismeðferð. Næmismyndun gegn DNCB
og síðan jóðlun lyfsins beint á meinið, hefur gefið
góðan árangur hjá sjúklingum með basalfrumu-
krabbamein, flöguþekjukrabbamein, mycosis fungo-
ides og húðlæg meinvörp brjóstakrabbameins.
Virh, sérhœfð ónœinismeðferð
Autologous œxlisfrumur (mynd 3). Við notkun
æxlisfrumna úr sama líkama til ónæmismeðferðar
er gengið út frá því, að inngjöf frumna á mörgum
stöðum örvi stærri hluta af ónæmiskerfinu, en upp-
runalega æxlið gerði á sínum stað. Nýleg vitneskja
bendir þó til þess, að ónæmiskerfi sjúklinga viti
ekki einungis af æxlinu, heldur sé þegar undir allri
þeirri örvun, sem það getur svarað viðkomandi æxl-
isfrumum óbreyttum. Við notkun í mönnum verða
frumurnar að vera dauðar eða óvirkar, svo þær
vaxi ekki á inngjafarstað.
Allogenískar œxlisfrumur (Mynd 4). Þessar frum-
ur verða að hafa sams konar mótefnavaka og æxli
sjúklingsins, svo forsenda sé fyrir notkun þeirra.
Þessar frumur eru vanalega drepnar eða gerðar ó-
virkar fyrir notkun og er þetta fyrsta og einfaldasta
skrefið í þá átt að umbreyta yfirborði æxlisfrumna
til notkunar við ónæmismeðferð. Auk hinna sérkenn-
andi æxlismótefnavaka, hafa þær á yfirborði sínu
kröftuga HL-A mótefnavaka, sem eru framandi fyrir
hýsilinn. Alitið er, að HL-A mótefnavakarnir leiði
til aukinnar ónæmisvirkni, sem einnig nái til hinna
sameiginlegu, sérkennandi mótefnavaka frumnanna
og æxlis sjúklingsins.
Umbreyttar œxlisfrumur (Mynd 5). Næsta skref í
sömu átt, er að umbreyta æxlisfrumunum þannig að
ónæmisvirkni þeirra aukist. Upphaflega voru auto-
logous æxlisfrumur notaðar, sem tengdar voru sterk-
um mótefnavökum, t. d. BSA og síðan dælt aftur í
sjúklinginn. Verið er nú að gera klíniskar tilraunir
með afbrigði af þessari aðferð. Notað er enzym, sem
nefnist Vibrio Cholerae Neuraminidase (VCN).
Þetta efni breytir yfirborði æxlisfrumnanna með þvi
Mynd 4. Virtc, sérhœjð ónæmisaðgerð: Allogenískar œxlisjrumur. Æxlisfrumur frá sjúklingi A drepnar, gejnar sjúklingi B,
sem hejur œxli með eins, sérkennandi œxlismótefnavaka. Æxlisfrumur frá sjúklingi A taldar ónœmisvirkari vegna sterkra
HL-A mólejnavaka, framandi sjúklingi B, sem era nátengdir æxlisfrumumótejnavökunum á yjirborðinu.
LÆKNANEMINN
11