Læknaneminn - 01.03.1976, Side 40
Mynd 3
Blóðrannsóknir leiddu í ljós sökkhækkun 77 mm
og hvít blóðkorn reyndust 12200/mikrol. Aðrar blóð-
og serumrannsóknir voru eðlilegar.
2.
53 ára gömul kona hafði haft verkjaköst um ofan-
verðan kvið í 4-5 ár, mjög slæm mánuðinn fyrir
komu. Verkjaköstunum hefur fylgt uppþemba, sem
ekki lagast við að ropa eða að hafa hægðir. Köstin
stóðu í 2-3 daga. Bezta ráðið til að lina verkinn var
hitapoki á ofanvert kviðarhol. Verkirnir virtust ekki
standa í sambandi við máltíðir eða mataræði.
Hægðatregða hafði verið í mörg ár og hún notaði
hægðalyf að staðaldri. Ekki var ógleði, lystarleysi
né megrun. Engin gula.
I almennri heilsufarssögu kemur fram, að hún
hefur reykt mikið, 20—40 sígarettur á dag, og hefur
30
í mörg ár haft hósta og hvítleitan uppgang á morgn-
ana.
Við almenna skoðun kemur fram, að hún er
hraustleg með eðlilegan litarhátt, feitlagin. Or í
neðri miðlínu (hysterectomia fyrir u. þ. b. einu ári).
Annað afbrigðilegt kom ekki fram. Blóðrannsóknir
eru eðlilegar ef frá er talin væg neutropenia og smá-
vegis vinstri hneigð við diff. talningu. Serumrann-
sóknir eðlilegar. I þvagi fundust við smásjárskoðun
bakteríur, hvít blóðkorn og epithel. Cholecysto-
grafia sýnir mjög sérstæða og sjaldgæfa sjúkdóms-
mynd (mynd 3). Aðrar röntgenrannsóknir voru
eðlilegar. Skurðaðgerð var ákveðin. Hver er grein-
ingin?
Fyrsti ónasmisfrœðingurinn
Mithridates Eupator, konungur í ríkinu Pontus viS Svarta-
haj (hluti aj núverandi Tyrklandi) ríkti jrá 132-163 f. Kr.
Hann uppgötvaSi af tilviljun eitt af grundvallarlögmálum
ónœmisfrœSinnar. Hann átti marga óvini og óttaSist, aS
þeir hyggSust byrla honum eitur. Hann reyndi því aS finna
mótefni gegn hinum ýmsu tegundum eiturs. MeS því aS táka
jyrst inn líliS magn af eitrinu og auka svo skammtinn smám
saman, sá hann aS hœgt var aS innbyrSa stóra skammta af
eitrinu án þess aS verSa meint af. Þannig vann Mithridates
sér nafn sem fyrsti ónœmisjrœSingurinn.
LÆKNANEMINN