Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 43
7. ár
Epreuves Clinique
Pathologie Médicale
Pathologie Chirurgicale
Pathologie Obstetricale
THÉSE
Af þessum lista má sjá, að niðurröðun námsefnis
a ár er nokkuð frábrugðin því, sem er við Háskóla
Islands. Heildin er vafalaust svipuð, ef grannt er
skoðað.
Frakkland hefur nokkra sérstöðu hvað varðar fag,
er þeir nefna Semiologie, sem mætti kannski nefna
einkennisfræði á íslenzku. Einn þriðji hluti náms-
tímans á þriðja námsári er helgaður Semiologie, og
er það kennsla í sjúkdómsgreiningu á klínískum
einkennum einum saman.
Eins er fögum oft dreift yfir fleiri en eitt ár.
Dæmi í því tilviki má nefna Anatomie Pathologique
og Electroradiologie. Einnig er lögð áherzla á nokkra
endurtekningu í kennslunni, sem gerir nemum auð-
veldara að festa sér í minni hina nauðsynlegu undir-
stöðu. Skulu þar nú tekin tvö dæmi:
Anatomie
A fyrsta ári eru tveir fyrirlestrar á viku, nokkurs
konar yfirlit yfir anatómiu.
A öðru ári er anatómían endurlekin í smáatriðum
samhliða krufningum. Fjórir fyrirlestrar og tvær
klst. krufningar á viku.
Semiologie - Pathologie - Therapeutique
A þriðja ári hefst kennsla í Semiologie.
A fjórða og fimmta ári er kennd Pathologie Médi-
cale og Pathologie Chirurgicale. Skiptist fyrirlestur-
inn tiðast í eftirtalda þætti:
Definition
Etiologie
Physiopathologie
Clinique
Formes Cliniques
Diagnostic
Traitement.
Á sjötta ári er svo loks kennd Therapeutique og
eru þá auðvitað rifjuð upp helztu einkenni hvers
sjúkdóms í byrjun fyrirlestrar.
Kennslan
Kennslan fer fram í fyrirlestrarformi. Standa fyr-
irlestrar í 55 mínútur. Ekki er farið eftir sérstökum
bókum, en hafi prófessor skrifað bók í viðkomandi
fagi, má stundum ætla, að henni svipi til fyrirlestr-
anna. Nemendur sjá svo yfirleitt um fjölritun og
dreifingu fyrirlestranna á hverju ári. Sé um verk-
lega kennslu að ræða í einhverju fagi, fer hún fram
í smáum hópum. Þegar sóttur er kúrsus, má heita
regla að viðkomandi deild skipuleggi kennslu og
umræðufundi.
Kúrsar
Eins og fram kemur að ofan, eru vandkvæði á
því að koma stúdentum fyrir á deildum háskóla-
sjúkrahússins, sem reyndar er staðsett í þremur
borgum, þ. e. Montpellier, Nimes og Perrignan. Hin
ýmsu sjúkrahús hafa 8309 rúm samtals. Kandidatar
dreifast hins vegar á langtum stærra svæði. Hvað
um það, hin praktíska hlið getur farið forgörðum í
venjulegu læknanámi, sé ekki fullur áhugi fyrir
hendi.
Á hverju hausti sækja nemar um þær deildir, sem
þeim lízt bezt á, og koma ýmsar leiðir til greina.
Einkunnir á síðasta vorprófi ráða síðan úrslitum um,
hvort nemi kemst á þær deildir, sem hann hefur
mestan áhuga á.
Mætingaskylda á kúrsus er mjög ströng. Á fjórða
ári man undirritaður eftir nemum, sem fengu ekki
viðurkenndan kúrsus eftir að hafa tekið út leyfilegt
skróp, sem var tveir dagar á sjö vikum.
Kúrsusar eru sem hér segir:
3. ár
2 mánuðir.
Médicine.
Chirurgie.
Specialité.
læknaneminn
33