Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Side 25

Læknaneminn - 01.07.1979, Side 25
Antigen-bindandi set Mynd 1. Yjirlitsmynd um byggingu mótejnis úr jlokki G (IgG). brigðilegar sameindir (framandi antigen) skjóta UPP kollinum.* Undanfarinn áratug hafa rannsóknir á byggingu ntotefna verið mjög ofarlega á blaði og þekking á siginleikum og gerð þessara sameinda hefur ger- kreyst. Við munum ekki hér gera neina lilraun til þess að ræða þessar niðurstöður, heldur aðeins nefna örfáar staðreyndir, sem snerta þá umræðu sem hér fer á eftir. Grunnbygging mótefnissameinda er sýnd í nokkr- um meginatriðum á mynd 1. Þessi eining er byggð Ur fjórum polypeptíð keðjum, tveimur þungum og Geimur léttum. Sameindin er byggð úr samhverf- um helmingum, sem hvor um sig inniheldur, eina létta og eina þunga keðju, en helmingarnir eru tengdir saman af disulfíð-bindingum. I hvorum belmingi fyrir sig eru léttu keðjurnar sömuleiðis tengdar við þær þungu af disulfíð-bindingum. Heild- arbyggingin verður þannig Y-laga og hver sameind hefur tvö antigen-bindandi set, eitt á hvorum armi ^ -sins, en næmi þessara seta er jafnan hið sama. kolypejjtiðkeðjunum er ennfremur pakkað saman í meira eða minna kúlulaga hlutsvæði, þeim þungu í Um veirur og krabbamein meS mönnum, sjá t. d. W. Henle et al. The Epstein-Barr Virus. Sc. Am. July 79 bls. 40. fjögur slík, en þeim léttu í tvö (sjá mynd 1). Athug- anir hafa sýnt að breytileiki í aminosýruröð kemur aðallega fram innan þeirra hlutsvæða, sem mynda anligen-bindandi setin. Þessi svæði nefnast því breytileikasvæði og eru auðkennd með V (VH fyrir þungu keðjurnar og VL fyrir þær léttu), en önnur svæði eru tiltölulega óumbreytanleg og eru auð- kennd með C auk H eða L og tölu fyrir sætisröð frá VH í þungu keðjunum.* Mótefnin eru flokkuð í fimm flokka eftir byggingu þungu keðjanna. Þessir flokkar nefnast IgG, IgA, IgM, IgD og IgE og er raðað eftir þéttni viðkom- andi mótefna í serum. Þungu keðjurnar eru auð- kenndar með tilsvarandi grískum bókstöfum: gamma (y), alfa («), my (p), delta (8), og epsilon (e). Léttu keðjurnar eru tvenns kona kappa (x) og lambda (A.). Báðar þessar tegundir af léttum keðj- um 'koma fyrir í öllum flokkunum, en tiltekin mót- efnissameind inniheldur annað hvort tvær kappa eða tvær lambda keðjur aldrei eina af hvorri tegund. Hver ofangreindra flokka um sig getur innihaldið mótefni af hvaða næmi sem vera skal. Mikill fjöldi rannsókna hefur beinst að því að upplýsa byggingu nema T-lymphocyta og þótt enn sé miklu minna um þá vitað en mótefnin eru þó flestir sammála um ákveðna meginþætti. Nemarnir á yfirborði T-lymphocyta virðast vera immunoglo- bulin, a. m. k. í þeim tilfellum að hin virku set eru mynduð af VH svæðum. Fjölbreytileiki í svörunum b Mynd 2. Líkön uj nema T-lymphocyta. * Sjá nánar um byggingu mótefna: J. D. Carpa A. B. Ed- mundson. The Antibody Combining Side. Sc. Am. Jan. 77 bls. 50. LÆKNANEMINN 21

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.