Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Side 35

Læknaneminn - 01.07.1979, Side 35
Ein alþjóðaeining jafngildir 16.67 nanokatal HU — 16,67 nkat). Ymsir þættir aðrir en enzymkonsentration hafa áhrif á hraða enzymhvataðra hvarfa. Þeir helstu eru pH, hitastig, súbstratkonsentration og konsentra- tionir koenzyma, málmjóna og annarra áhrifsefna í hvarflausninni. Sumir þessara þátta eru háðir hver öðrum. báðar ofangreindar skilgreiningar enzymvirkni- eininga gera ráð fyrir að mælt sé við „optimal" að- stæður, þ. e. þær aðstæður þar sem enzymið virkar hest og hið enzymhvataða hvarf gengur hraðast. kigi mælingar að vera sambærilegar er því nauðsyn- legt að velja áðurnefnda þætti saman, þannig að há- marksvirkni fáist. Hafa ýmsir aðilar reynl að koma a samkomulagi um slíkar aðstæður. Við enzymmæl- Ingar á Landspítalanum hefur verið farið eftir ráð- leggingum svokallaðrar skandínavískrar enzym- nefndar, sem skilgreint hefur staðlaðar hvarflausnir fyrir mælingu nokkurra enzyma í serumi. f tilraunum til að ná alþjóðlegu samkomulagi um enzymmælingar hefur bitastig hvarflausnarinnar valdið nokrum erfiðleikum. Lengi var hitastigið C notað víða, enda alþjóðlegt viðmiðunarhita- stig í eðlisefnafræði, og tæknilega auðvelt að halda npplausnum við það hitastig í rannsóknastofum í okkar heimshluta, þar sem herbergishiti er nokkru iægri en 25°C. Hins vegar hentar það miður á suð- lægari slóðum. Margir hafa haldið því fram að 37°C vœri æskilegt hitastig fyrir enzymmælingar. Auk þess að vera „fysiologiskt“ hitastig mannslíkamans hefur 37°C þann kost að hvarfhraði er nær helmingi ®eiri en við 25°C og næmi mælinga því að sama skapi meira. Hefur skandinaviska enzymnefndin val- iö það hitastig fyrir enzymmælingar í serumi, en nðrir, t. d. Þjóðverjar, halda sig við 25°C. Er nauð- synlegt að hafa það í huga þegar tölur eru bornar saman. ísóenzytn flrðið ísóenzym hefur verið notað til að lýsa niengi enzyma í sömu lífveru, sem hafa í aðalatrið- nrn sömu enzymvirkni, en ólíka eiginleika að ein- kverju öðru leyti. IJó að lengi hafi verið vitað, að nokkur enzyma, LæKJ\ANEMINN TAFLA II Nokkur enzym, sem notuð eru við sjúdómsgrein- ingar, og sem skiptasl í ísóenzym Laktat dehydrogenasi Isocitrat dehydrogenasi GIúkósa-6-fosfat dehydrogenasi Glutamat dehydrogenasi Aspartat aminotransferasi Kreatínkínasi Acetylcholinesterasi Cholinesterasi Alkaliskur fosfatasi Súr fosfatasi 5^-nucIeotidasi alfa-amylasi Leucin-aminopeptidasi Aldolasi t. d. súr fosfatasi og cholinesterasi, úr mismunandi vefjum hefðu ólíka eiginleika, var það sú uppgötv- un þeirra Vessel og Bearn árið 1957, að laktat de- hydrogenasa í serumi mátti greina með rafdrætti í fimm mismunandi þætti, sem leiddi til almenns áhuga á möguleikum ísóenzymagreinmgar. Greining ísóenzyma í serumi gerir það að verk- um, að enzymmælingin verður markvissara sjúk- dómsgreiningartæki, því að með því móti er oft unnt að ákvarða með vissu úr hvaða líffæri serum- enzymið er upprunnið, þegar hækkun heildarvirkni gæti verið vísbending um vefjaskemmd í tveim eða fleiri ólíkum líffærum. Tafla II sýnir nokkur þeirra enzyma, sem notuð hafa verið við sjúkdómsgreiningar og sem vitað er að skiptast í ísóenzym. Grundvöllur s'kiptingar enzyma í ísóenzym er breytilegur, og má skipta honum í nokkra flokka. Þeir flokkar, sem mestu máli skipta, eru sem hér segir: I. I allmörgum tilvikum er um að ræða erfða- fræðilega sjálfstæð protein, tvö eða fleiri, sem hafa sömu enzymvirkni en eru afpsrengi aðskildra gena. Til dæmis er aspartat amínótransferasi í mitochon- dria ólíkur frymisenzyminu að amínósýrusamsetn- 31

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.