Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 35

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 35
hefir nú þá ánægju að sjá við hlið sér í þessu efni öll blöð Sjálfstæðisflokksins og kommúnista og það mjög ákveðin, svo að þau’ganga jafnvel feti framar •en Alþýðuflokkurinn í samúð sinni með Bandamönn- um. í júlímánuði 1941 barst ríkisstjórninni ákveðin ■ósk frá Bandaríkjastjórn og Bretum, um að hinn fyrrnefndi aðili tæki að sér hervernd íslands. Þetta mál var rætt í miðstjórn og þingflokki Alþýðu- r flokksins hinn 8. júlí 1941, og féllst fundurinn á, að taka bæri tilboði Bandaríkjanna um hervernd. Bæði 'Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarmenn voru þessu og fylgjandi, en kommúnistar ekki. Frá þeim tíma hefir Bandaríkjastjórn annazt her- vernd landsins, og tel ég ekki ástæðu til að víkja að því nánar. Þótt Alþýðuflokkurinn færi úr ríkis- stjórninni, breytti það í engu stefnu hans í utanrík- ismálum, — að taka eindregna afstöðu með lýð- ræðisþjóðunum gegn einræði. En nú vil ég með nokkrum orðum víkja að inn- anlandsmálunum nokkru nánar, þótt ég geti að mestu látið nægja að vísa til þess, sem ég hefi sagt hér á undan. I-Ivað skattamálin snertir, þá hafa þau verið ræki- lega rakin hér á undan í VI. kafla skýrslu minnar, •cg læt ég það nægja. Svipað má segja um tillögur og frumvarp Alþýðu- flokksins varðandi dýrtíðarmálin. Alþýðuflokkurinn bar strax sumarið 1940 fram tillögur um að leggja á útflutningsgjald, er næði til allra vara, sem seldust hr landi með stríðsverði og stríðsgróða, en gjald 33

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.