Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 55
1. Að veita ríflegan fjárstyrk til stofnunar fæðingar-
heimilis í Reykjavík hið allra fyrsta og í hinum
stærri kaupstöðum landsins, eftir því sem þörf
krefur.
2. Að endurskoða löggjöfina um barnavernd með
hliðsjón af fenginni reynslu í þeim málum.
3. Að stuðla að því, að komið verði upp sumardval-
arheimilum mæðra og barna og fjölgað verði dag-
og dvalarheimilum fyrir börn.
4. Að taka sérskóla um verkleg mál í hendur ríkis-
ins og endurskoða skóla- og fræðslulöggjöf lands-
ins með það fyrir augum, að námstilhögun í skól-
um þeim, sem ætlaðir eru unglingum á aldrinum
14—18 ára, sé breytt í áttina til aukinnar verk-
legrar fræðslu og hagnýtrar þekkingar, og æsk-
unni sé tryggður jafn réttur til náms með nauð-
synlegum fjárhagslegum stuðningi við þá efna-
minni.
5. Að veita ríflegan styrk til bygginga barnaskóla
og æskulýðsskóla, veita félagssamtökum æsku-
lýðsins stuðning til þess að koma upp æskulýðs-
heimilum, þar sem kostur sé á góðum bókasöfn-
um og öðrum hollum skemmtunum.
6. Að veita ríflegan styrk til byggingar leikvalla.“
Allsherjarnefnd.
17. þing Alþýðuflokksins lítur svo á, að hagur
Reykjavíkurbæjar og framtíð þjóðarinnar sé mjög
undir því kominn, að óheilbrigt skemmtanalíf spilli
ekki æskulýð bæjarins. Fyrir því skorar þingið á
Ö3