Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Síða 56
Alþingi og bæjarstjórn, að hlutast til um að komið
vgrði á fót hið allra bráðasta æskulýðsheimili, er sé
menningarmiðstöð fyrir æskulýð bæjarins, þar sem
ungt fólk eigi völ nægra bóka og heilbrigðra skemmt-
ana í tómstundum sínum.
Með því að barnaskólar bæjarins eru miargisetnir
og yfirfullir, en vantar alveg í sumum skólahverfum,
og húsrúm gagnfræðaskólanna og fleiri framhalds-
skóla bæði lélegt og yfirfullt, svo að nauðsynlegum
hollustuháttum verður eigi við komið, skorar 17.
þing Alþýðuflokksins á Alþimgi og bæjarstjóm
Reykjavíkur að beita sér fyrir umbótum á þessu
sem allra fyrst.
Þingið vill færa trúnaðarmönnum Alþýðuflokks-
ins á opinberum vettvangi fyllstu þakkir fyrir bar-
áttu þeirra á liðnum árum og treystir þeim til að
iberjasit áfram í sama ainda og hingað tiil fyrir hvers
konar félagslegum umbótum.
Tillögur fræðslumálanefndar.
17. þing Alþýðuflokksins ályktar:
1) að kjósa 3 manna nefnd til þess að gera tillögur
til miðstjórnar flokksins um framtíðarskipulag og
starfsemi M.F.A. í samráði við stjórn þess og fram-
kvæmdastjóra.
2) að brýna nauðsyn beri til þess að flokkurínn
ráði sérstakan framkvæmdastjóra, er hafi með hönd-
um dagleg störf fyrir flokkinn og skipuleggi flokks-
starfsemina og útbreiðslustarfið og stjórni hvoru
tveggju, enda gegni hann engu öðru aðalstarfi. Enn
fremur ráði flokkurinn einstaka menn til þess að
54