Úrval - 01.07.1965, Síða 97

Úrval - 01.07.1965, Síða 97
Á FERÐ MEÐ KALLA 95 förum eftir vatnstauma. Það er líkt og þúsund mílur séu á milli árbakka Missouriárinnar. Ég var sannarlega ekki viðbúinn þessum miklu þáttaskilum við Missouriána. Og hið sama má segja um hin svokölluðu Vondulönd. Þau komu mér sannarlega á óvart. Þau eiga þetta nafn skilið. Þau eru líkt og handaverk barns, sem haldið er illgirni. Þau eru þess háttar staður, sem hinir föllnu englar hefðu get- að tekið upp á að búa til sem stork- un gegn himnariki. Þar er allt skraufþurrt og oddhvasst. Þar rík- ir auðn, og þar leynist hætta. Mér fannst þau sem illur fyrirboði. Þau vekja hjá manni þá kennd, að þeim geðjist ekki að mönnum og bjóði þá þvi ekki velkomna. Ég beygði út af þjóðveginum inn á malarstíg og lagði síðan af stað inn á milli hæðanna, sem líktust næstum hömrum. Yfirborð vegarins reif og sleit hjólbarðana mína illskulega og fékk ofhlaðnar fjaðrirnar á honum Rocinante til þess að veina af kvölum. Innan skamms fannst mér ég vera á flótta. Ég vildi flýja þetta ójarðneska landssvæði. En tíminn rétt fyrir rökkurbyrjun ger- hreytti öllu. Er sólin tók að lækka æ meira á lofti, var sem hið sviðna og ógn- vænlega yfirbragð hæðanna og hamranna, meitlaðra klettanna og gjánna þurrkaðist út, og nú ljómaði allt landið í gulum og skærbrúnum litbrigðum, silfurgráum og öllum hugsanlegum afbrigðum of rauðum lit, en innan um gat að líta kol- svartar rákir. Þetta var svo fögur sjón að ég nam staðar nálægt þyrp- ingu dvergvaxinna og vindskek- inna sedrusviðartrjáa. Og er ég hafði numið staðar, var sem mér væri haldið þar föngnum. Það var sem litirnir hefðu tekið mig til fanga og hin yfirþyrmandi skira birta hefði gert mig hálfruglaðan. Hamrarnir sneru dökkir og meitl- aðir gegn hinni lækkandi sól- kringlu, en í austri, þar sem birtan flæddi skáhallt niður, öskruðu lit- ir landslagsins fagnandi á mann. Og það var langt frá því, að nóttin þarna væri ógnvænleg, heldur var hún ósegjanlega fögur, því að stjörnurnar voru svo nálægt. Þótt máninn væri hvergi sýnilegur, vörpuðu stjörnurnar frá sér silfur- glóð um himinhvelfinguna. Mig sveið í nasirnar af þurru frostinu. Ég fann allt í einu til löngunar til þess að kveikja litið bál. Ég safnaði saman hrúgu af dauðum sedrusviðargreinum og kveikti dálítið bál til þess að finna anganina af brennandi viðnum og heyra æst snarkið í greinunum. Og bálið mitt varð að hvolfþaki af gulu ljósi, er gnæfði yfir mig, og skammt undan heyrði ég uglu væla á veiðum og sléttuúlfa ýlfra. Nóttin var svo köld, að ég fór i hlýju ullarnærfötin mín i stað náttfata, og þegar Kalli var búinn að hringa sig saman undir rúminu mínu, náði ég í teppi og breiddi yfir hann — og lét trýnið eitt standa út undan teppinu. Hann and- varpaði og ók sér til og gaf frá sér innilega stunu, sem gaf til kynna, að honum liði alveg dýrðlega. Mér varð hugsað til þess, hversu ný á- hrif, sem ég varð stöðugt fyrir á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.