Úrval - 01.10.1966, Page 6

Úrval - 01.10.1966, Page 6
4 ÚRVAL brýr, yfir iðgrænar grasflatir og um unaðslega laufskála. Garðyrkjumenn og grasafræðing- ar um víða veröld dást að Munda Wanga, sem hefur nú að geyma 2.538 tegundir jurta, en 6 af hverj- um 10 vaxa nú í Zambia í fyrsta skipti. Jurtir þessar koma víðsveg- ar að úr heiminum og búa við ýmiss konar loftslag í heimalöndum sín- um, Bretlandi, Bandaríkjunum, Rússlandi, Chile, Á'stralíu, ísrael, Kína og 33 öðrum löndum. Og allar dafna jurtir þessar í jarðvegi Munda Wanga. En hið furðulegasta við þennan Edengarð nútímans esr sú stað- reynd, að það var í rauninni einn maður, sem átti hugmyndina að þessum garði og skapaði hann með lítilli hjálp, stein fyrir stein, jurt fyrir jurt. Maður þessi heitir Ralp Sander, og hann hefur enn yfirum- sjón með öllu, sem framkvæmt er í Munda Wanga. Hann er nú orð- inn 56 ára gamall, en á honum sjást fá merki þrældómsára þeirra, sem hann fórnaði draumum sínum. Hann er þreklega vaxinn, með stálgrátt hár og hvöss, blá augu. Og hann gleðst innilega sem barn yfir hverri nýrri jurt, hverjum nýjum lundi í garði sínum, já, hverri nýrri blóm- krónu. Það er augsýnilegt, að Ralp Sander hefur sannarlega fundið sitt rétta hlutskipti hér í lífi. Því hefur þó ekki ætíð verið þannig farið. Hann er að vísu kom- inn af frægri garðyrkjumannaætt, Sanderættinni frá St. Albans og Bruges, og sjálfur var hann með- limur Konunglega garðyrkjufélags- ins í Bretlandi. En samt hafði líf hans einkennzt af hverjum mis- tökunum öðrum verri, auðmýkj- andi mistökum. Hann var alger ör- eigi, þegar hann gerðist veiðivörð- ur á vegum nýlendustjórnarinnar brezku og settist að í Chilanga, ná- lægt stað þeim, sem ber nú nafnið Munda Wanga. Hann bar svipmót þess manns, sem kominn er á enda langrar, grýttrar leiðar. En það var einmitt á þessum afskektka stað meðal frumstæðs fólks, að þessi óljósi draumur hans, sem blundað hafði í huga hans lengi vel, fór að taka á sig skýra mynd. KJARNI DRAUMSINS Sander gerði yfirboðara sína steinhissa, þegar hann bað um leyfi til þess að flytja í niðurníddan kofa- ræfil á bökkum Musombangomeár- innar nálægt Chilanga, skömmu eft- ir að han kom þangað. Þeir' urðu samt við beiðni hans og jafnskjótt var honum veittur réttur til 5 ekra lands þarna við ána, og reyndist þetta vera mjög þýðingarmikið, því að það voru einmitt þessar ekr- ur, sem urðu kjarni Munda Wanga. Það var engin vatnsleiðsla í kofan- um, en aftur á móti streymdi regn- ið gegnum þakið. Það var ekkert rafmagn, ekkert frárennsli. Næstu nágrannar hans, og jafnframt þeir ágengustu, voru heilar hjarðir mý- flugna, er stigu sem ský upp frá yfirborði árinnar. En Ralph Sander fannst nýja heimilið samt gætt ein- um miklum kosti. Þar var hann aleinn og frjáls. Hann gat notfært sér landið umhverfis kofann á hvern þann hátt sem hann vildi. Það leið langur tími, þangað til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.