Úrval - 01.10.1966, Page 9
GARÐYRKJUMAÐURINN í CHILANGA
7
vatn en hann hafði þörf fyrir. Hann
átti nú orðið inni margra ára sumar-
leyfi og tók sér nú hálfsársleyfi frá
störfum og byggði sér geysistórt
uppistöðulón, sem tók um 160.000
lítra. Og þegar því verki var lok-
ið, útbjó hann heilt kerfi lækja og
fossa í garðinum og síðan breytti
hann lóninu í risavaxna sundlaug,
sem hann lagði bláum flísum af
hinni mestu kostgæfni. Og nú er
sundlaugin vinsælasti bletturinn í
Munda Wanga, glitrandi vin, þar
sem þreyttir ferðalangar geta kælt
líkama sinn í hitunum og endur-
nærzt.
í fyrstu hafði vinnunni við garð-
inn miðað mjög hægt áfram, en nú
fór heldur betur að færast líf í
tuskurnar. Einum þætti Verksins
var ekki fyrr lokið en byrjað var
á öðrum. Skrifstofubygging var
reist, síðan gróðurhús og geymslu-
hús og að lokum var lagður sími
og rafmagn í húsin. Sander útbjó
sundlaug fyrir börn við hlið stóru
laugarinnar til þess að gleðja sína
ungu gesti og hann setti einnig á
ána bát handa þeim.
Strax og Sander tók að útbúa
garðinn Munda Wanga, hafði hann
jafnframt gert hann að friðlandi
fyrir ung dýr, sem reikuðu þang-
að. Nú varð þetta friðland smám
saman að raunverulegum dýragarði.
Þar gat nú að líta ýmis skógardýr
Síðan kom hann sér upp safni
margs konar fugla, og brátt endur-
ómaði garðurinn af söng þeirra og
skrækjum. Þar gat jafnvel að líta
glæsta páfugla, sem gengu tign-
arlega um garðinn og juku enn á
dýrðlega litaglóð hans.
Ralph Sander, við eitt tréð
í garðinum í Munda Wanga og hundurinn
Sukre sem er tíu ára.