Úrval - 01.10.1966, Síða 23

Úrval - 01.10.1966, Síða 23
SPURÐU OG HLUSTAÐU 21 ið siður að konan ætti að spyrjast fyrir,“ sagði hún. „Þannig hefur dróttningin af Saba farið að því með Salómon konung. í Síðari Kroniku- bókinni segir að „er hún kom til Salómons, bar hún upp fyrir hon- um allt sem honum bjó í brjósti. En Salómon svaraði öllum spurn- ingum hennar.“ É? fór nú að spyrja sjálfan mig, hvað það mundi vera sem drottn- ingin af Saba kunni svo vel að spyrja, en ég ekki. Ég færði þetta í tal við kunn- ingja okkar, Dr. Harry Fosdick, vitran mann og vinsælan. Hann hugsaði sig um og sagði svo: „Ef þessi list er til, þá hugsa ég að hún sé í því fólgin að láta spurn- ingu og svar mætast á miðri leið. Sá sem spyr góðra spurninga hlýt- ur að vera góður áheyrandi, og það geta menn vitanlega aldrei gert sér upp, heldur fer það eftir hugar- fari og samstillingu." Þetta lét ég mér að kenningu verða, og þegar maðurinn minn kom heim um kvöldið, óð ég ekki á hann með spurningarnar, heldur beið ég eftir því að hann byrjaði. Þetta var dálítið erfitt fyrir mig, því ég er því vönust að segja undir eins það sem mér dettur í hug, en þó sat ég á mér. Þögnin var nokk- uð löng, en svo sagði hann: „Nú er ég farinn að starfa að því að koma upp nýrri verksmiðjunefnd ÍC Hann hélt áfram að lýsa þessu, og ég þurfti ekkert að gera mér upp áhuga, því nú hafði ég áhugann, einmitt vegna þess að hann var að tala um það sem honum var hug- leikið. Þegar hann var búinn að segja mér frá þessu, brosti hann og sagði: „Þú skilur það að mér þykir gaman að segja þér frá þeg- ar þú hlustar svona.“ En hvað mér þótti vænt um þetta! Sá sem getur látið aðra finna að hann nemi hugsanir þeirra ekki síður en orðin, er gæddur ómetan- legri gáfu. Það var alkunna, hvað John F. Kennedy spurði skarplegra spurninga og hlustaði vel á það sem honum var sagt. Robert Saudek, maður sem var í ráðum með hon- um þegar þeir voru að undirbúa „Profiles in Courage" undir sjón- varp, sagði síðar svo frá að sér hefði jafnan fundizt sem honum lægi ekki meir á öðru en að tala við sig — spyrja sig og hlusta á sig með óskiptri athygli. „Kennedy kunni það betur en nokkur annar sem ég hef þekkt að hafa hugann við stundina sem var að líða.“ „Stundin sem var að líða“. Þessi orð snertu mig eins og elding. Ég skildi það nú að ég hafði ekki verið nógu nærfærin gagnvart bónda mínum og börnum. Væri mér það full alvara að skilja þau og vita vilja þeirra, þá varð ég að sæta lagi og spyrja hverrar spurningar þegar tilefni gafst, en reyna ekki að búa til tilefnin. Ég var orðin reynslunni ríkari, af viðleitni minni og mistökum. Ég tók mér sæti og fór að gera skrá þá, sem hér fer á eftir. Hversu spyrja skal. § Sættu lagi að spyrja vel val- innar spurningar, og bíddu svo eft-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.