Úrval - 01.10.1966, Page 32
Þeir, sem hafa áhyggjur af
viannkyninu muna ekki eftir
þróun mannsandans.
Eftir hók, sem kemur
á markað innan skamms.
igBHEWíSKUNNSEM1 er tiltölulega
wiSw fyrirbrigði hinnar
IftffWnJI mannlegu sálar. Fyrir að-
eins rúmri öld auðsýndi þjóðíélag-
ið lítilmögnunum innan vébanda
sinna, börnum, dýrum, þrælum,
föngum og vitfirringum, hryllilega
grimmd. Þrátt fyrir marga galla
þjóðfélagsbyggingarinnar hneigj-
umst við nú til meiri miskunnsemi,
bæði hvað snertir viðhorf almenn-
ings og hegðun einstaklingsins. Það
yljar manni sannarlega um hjarta-
ræturnar að sjá, hvernig mann-
úðarhugsjónir mannsins vinna
hægt og hægt sigur á hinni frum-
stæðu grimmd hans.
íþróttirnar eru á hverjum tíma
spegilmynd af menningarstigi þjóð-
félagsins. Og íþróttamenn fyrri
alda virtust næstum haldnir kvala-
losta miðað við nútímann. Hnefa-
leikahanzkar rómversku hnefa-
leikakappanna voru úr bronsi og
alsettir hnúðum og göddum. Högg
með slíku vopni afmáðu í rauninni
andlit mótstöðumannsins eða reif
og sleit stóreflis holdflygsur úr
líkama hans. Uppáhaldsskemmtun
Caligulu keisara var viðureign
milli tveggja skylmingamanna, og
hafði annar net og þrífork að vopni,
en hinn sverð og skjöld. Eini leik-
dómarinn var dauðinn sjálfur.
1525: Prestur brenndur vegna villitrúar.
Frampróua
mannsins
Eftir Henry Morton Robinson.
30
Readers Digest