Úrval - 01.10.1966, Side 58

Úrval - 01.10.1966, Side 58
Meðferð lifandi máls Eftir Ævar R. Kvaran. Ókunnugum manni, sem kæmi til Englands og spyrði þarlendan mann, hvar heyra mætti feg- urst talaða enska tungu, myndi sennilega ráðlagt að gera eitt af þrennu: fara í kirkju og hlýða á predikun, bregða sér í leikhús eða hlusta á þuli eða fyrirlesara brezka útvarpsins. Sá, sem hefur sæmilega kunnáttu í enskri tungu, getur á augabragði heyrt á máli Englendings, hvort hann hafi hlotið skólamenntun eða ekki. Framburður málsins segir til um það. Þetta stafar vitanlega af því, að hver menntaður maður ber svo mikla virðingu fyrir móðurmáli sínu, að hann leggur rækt við fram- burð þess, enda yrði hann sér fljót- lega til athlægis ella. Þetta finnst hverjum Englendingi svo sjálfsagt, að honum kemur ekki í hug að ræða það. Sjálfsagður skilningur á þessu ríkir vitanlega einnig hjá stjóm kennslumála og kennarastéttinni; enda finnst sá menntaskóli ekki í öllu landinu, þar sem framsögn er ekki tekin alvarlega sem sjálfsagð- ur hluti af námi nemenda. Þetta gildir vitanlega um allar þjóðir, sem kenna sig við menningu. Erlendum vini íslenzkrar menn- ingar brygði alvarlega í brún og ætti vafalaust erfitt með að trúa því, væri honum sagt, að fagur framburður íslenzkrar tungu væri ekki kenndur í einum einasta skóla íslands; að þar væri einungis lögð áherzla á ritað mál. Það er engu líkara en við íslend- ingar höldum, að íslenzk tunga sé einungis ritmálið. En eins og orðið „tunga“ ber með sér er vitanlega ekki síður átt við talað mál en rit- að. Við eigum ágæta málfræðinga og málvísindamenn, sem hafa ritað talsvert um íslenzku frá ýmsum sjónarmiðum; en næstum allt er það helgað rituðu máli. í skólum eru rétti- lega gerðar til okkar strangar kröf- ur um kunnáttu í íslenzkri málfræði, bragfræði, setningafræði o.s.frv., og ■ er vitanlega ekki annað en gott um það að segja. Ég hef gengið hina venjulegu menntabraut gegnum barnaskóla, menntaskóla og háskóla, en aldrei minnist ég þess þó að hafa orðið var við, að íslenzkukennari skipti sér af framburði nemenda á máli þjóðarinnar. fslenzk skáld hafa í fögrum Ijóðum vegsamað móður- 56 Eimreiðin
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.