Úrval - 01.10.1966, Side 88

Úrval - 01.10.1966, Side 88
86 ÚRVAL fJeirum. Þú get-ur reiknað með því, að þeir séu einhvers staðar ekki langt undan. Og sýndu engin ótta- merki. Sýnir þú einhver merki um ótta, hvetur slíkt þá til árásar. Enda reyndist það svo, að úlfur- inn var ekki einn á ferð. Þegar ég hafði gengið svolítinn spöl, kom ég auga á a.m.k. 20 úlfa, sem biðu eftir því, að foringi þeirra, sem ég hafði fyrst komið auga á, ætti frum- kvæðið að sókninni gegn mér. Þeir hnipruðu sig saman uppi í brekkunum vinstra megin, og þeir voru einnig hægra megin við mig niðri á jafnsléttu. Kolsvört, glóandi augu þeirra litu 'aldrei af mér eitt augnablik. Ég hélt áfram að miða byssu- hlaupinu á stóra úlfinn, sem var framundan mér, án þess að hækka það, og ég fann fingurinn rjála við gikkinn. Ég var nú kominn svo nálægt honum, að ég hefði örugg- lega getað drepið hann. En það var aðeins hægt að setja eina kúlu í riffilinn í einu. og mér hefði sjálf- sagt ekki gefizt tóm til þess að hlaða hann oft og hleypa af, áður en öll hjörðin hefði steypt sér yfir mig. Ég hélt því áfram göngu minni, og ég var kominn rétt að foringjanum, þegar hann vék til hliðar. En það var honum augsýni- lega ekki að skapi, því að hann urraði og glefsaði í áttina til mín, og ég fór rétt fram hjá honum. En hann hafði ekki ætlað sér að sleppa mér svona auðveldlega. Hann leyfði mér að halda áfram svo sem um 10 fet og byrjaði svo að elta mig. Og hjörðin fylgdi fordæmi hans. Þeir komu nær og nær beggja meg- in við mig, er foringi þeirra lokaði smám saman bilinu á milli. Ég vissi, að svona gæti þetta ekki gengið miklu lengur. Nú sneri. ég orðið í hann bakinu, og því óx honum nú ásmegin. Hann urraði að mér og tók öðru hverju undir sig stökk og glefsaði. Hann kom svo nálægt mér, að tennur hans snertu næstum ökkla mína. Brátt mundi hann ekki hika leng- ur í sókn sinni, heldur stökkva á mig, kannske í næsta skipti eða þar næsta. Og ég mundi falla til jarð- ar, strax og hann stykki á mig. Hann var áreiðanlega 30 pundum þyngri en ég. Og á sama augnabliki mundi öll hersingin ráðast á mig. Það jafngilti sjálfsmorði að nema staðar, og það var þýðingarlaust að hlaupa og ómögulegt vegna snæv- arins. Ég tók því þá ákvörðun, að það væri bezt, að ég léti til skarar skríða gegn þeim án frekari biðar, meðan ég var enn uppi standandi. Hæfði ég hann ekki í fyrsta skipti, mundi öll úlfahjörðin hafa steypt sér yfir mig, áður en mér tækist að koma nýrri kúlu í riffilinn. En ég átti ekki annarra kosta völ. Ég sveiflaði byssunni aftur fyrir mig í átt frá mittinu, miðaði snöggt en af varkárni á foringjann, hleypti af og hæfði hann beint á milli augn- anna. Þá fékk ég sönnun fyrir því, hversu grimmir og huglausir úlfarn- ir eru í raun og veru. Skothvellur inn virtis lama þá sem snöggvast. Svo tóku þeir til fótanna, en í stað þess að ráðast á mig, réðust þeir að öruggari bráð, sinum fallna foringja. Þeir steyptu sér yfir hann sem ör-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.