Úrval - 01.10.1966, Page 93

Úrval - 01.10.1966, Page 93
VÍÐ ENDAMÖRK AUÐNANNA 91 komanda. Hann vildi birgja okkur upp af helztu nauðsynjavörum. „Þetta eru bara viðskipti“! sagði hann. Hann átti stóran hóp sleða- hunda. Og hann sagði, að við gætum fært honum slatta af þurrkuðum fiski og skyldi slíkt skoðast sem nægileg byrjunargreiðsla, en af- ganginn gætum við svo greitt, þeg- ar við kæmum með loðskinnin næsta vor. Pabbi tók í höndina á Russell og hristi hana. Og nú brosti pabbi innilega. Svona hafði hann ekki brosað í langan tíma. Hann hafði sjaldan brosað, síðan flóðið eyðilagði allt fyrir okkur. Svo sagði hann við okkur Sidney: „Strákar, fyrirtækið er komið á laggirnar á nýjan leik“! Og nú létum við hendur standa fram úr ermum, svo að um mun- aði! Við reyktum fisk í reykhúsinu nótt sem nýtan dag, og þegar trön- urnar voru orðnar fullar af fiski, reistum við bara nýjar til viðbótar þeim, sem fyrir voru. Og þann 1. ágúst vorum við búnir að pakka öllum fiskinum handa Pop Russell og 3000 stykkjum handa hundunum okkar. Við snerum aftur til Nul- ato, smíðuðum nýtt stýrishús á vél- bátinn, fermdum hann vetrarbirgð- unum okkar og lögðum svo af stað til kofans við ána, þar sem Charlie hafði beðið eftir okkur allan þenn- an tíma. Það tók okkur 10 daga að kom- ast þangað, en þegar við sigldum fyrir síðustu bugðuna, beið Charlie gamli okkar þar á árbakkanum. Mikið vorum við fegnir að sjá hann aftur! Við hristum hönd hans og fórum að segja honum frá því, sem á dagana hafði drifið. Við töluðum allir í einu. Charlie stóð þarna bara í sömu sporum og kinkaði kolli, líkt og hann hefði aldrei efazt um, að okkur tækist það, sem við höfðum ætlað okkur að gera, að finna vél- bátinn, snúa til baka með nægan fisk handa hundunum og nýjan veiðiútbúnað og birgðir til vetrar- ins. Pabba hafði grunað um alllang- an tíma, að „hann ætti kannske ekki eftir að verða miklu lengur hjá okk- ur“. Og þessi grunur hans reyndist á rökum reistur. Eftir að hafa stundað veiðar í eitt ár í viðbót, fékk hann berkla, og hann varð að flytjast til Sitka og setjast að í landnemahælinu, þar sem hann gat fengið læknishjálp og rétta umönn- un. Hann sagðist vera viss um, að hann kæmi aftur, en við sáum hann aldrei framar. Nokkru síðar dóhann. Síðan stunduðum við Sidney veiðar með Charlie gamla í nokkur ár í viðbót, en svo kom að því, að þetta reyndist honum einnig of erfitt. Hann hélt niður ána til þess að leita sér að daglaunavinnu þar niðri frá. En þetta voru erfiðir tímar. Við fréttum, að hann hefði dáið í Fair- banks, og sumir sögðu, að hann hefði soltið í hel. Sama ár kynntist Sidney Indíána- stúlku einni á Koyukukstöðinni og vildi giftast henni. Hann sagði, að við gætum samt haldið áfram að stunda veiðar saman, nú gætum við veitt í félagi öll þrjú, en ég vissi vel, að úr því yrði nú ekki, enda væri slíkt miklum vandkvæðum bundið. Að brúðkaupinu loknu ósk- aði ég honum því gæfu og gengis
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.