Úrval - 01.10.1966, Qupperneq 110

Úrval - 01.10.1966, Qupperneq 110
108 ÚRVAL veturna gæti ég farið að stunda veiðar á nýjan leik og nurlað sam- an nokkru fé, þangað til ég gæti komið mér upp verzlun aftur. Kannske átti það jafnvel fyrir mér að liggja að giftast aftur. Og þannig fór þetta í stórum dráttum, hvað atvinnuna snerti, stýrimannsstarfið, nýju verzlunina, já, þetta allt saman. Og á árinu 1962 eignaðis ég líka góða konu. Það setur að mér hroll, þegar mér verð- ur hugsað til þess, hversu auðvelt það hefði verið fyrir mig að gefast upp á hinum myrku dögum örvænt- ingarinnar rétt eftir eldsvoðann. Og þess vegna met ég þetta nýja góða líf mitt mjög mikils, og segi fólkinu mínu, Indíánunum, að það sé unnt að hrinda slíku og þvílíku í fram- kvæmd, að sjá drauma sína upp- fyllast. Kannske er það svolítið erf- iðara fyrir Indíána. Kannske tekur það svolítið lengri tíma. En það er gerlegt. LEYNILÖGREGLUMAÐURINN MEÐ SJÁLFVIRKA HEILANN Lögregluþjónn í New York, sem situr í lögreglubíl við vegarbrún- á fjölförnum þjóðvegi og fyllast kann tortryggni gagnvart einhverjum ökumanni, sem fram hjá fer, getur nú sannprófað það á 30 sekúndum, hvort þessi tortryggni hans hefur við nokkur rök að styðjast. Með hjálp útvarpssendistöðvar getur hann nú sent samstarfsmönnum sínum á lögreglustöðinni skrásetningarnúmer bifreiðarinnar, sem fram hjá fer, en þeir mata síðan rafreikni á upplýsingum þessum. Innan sekúndu hefur rafreiknirinn borið númer þetta saman við þúsundir númera á bílum, sem lýst.hefur verið eftir í sambandi við ýmsa glæpi, allt frá morðum til þjófnaða. Hálfri minútu síðar veit lögregluþjónninn í bílnum, hvort hann á að elta hinn grunsamlega ökumann og taka hann fastan eða snúa sér að öðrum störfum. Þetta hraðvirka samanburðakerfi gengur undir nafninu „Coral", sem myndað er úr upphafsstöfum hins fulla heitis (Computer Oriented Re- trieval of Auto Larcenists). Þar eð bílar eru á einn eða annan hátt tengdir 70% allra þeirra glæpa, sem tilkynntir eru, álítur lögreglan í New York, að ,,Coral“-kerfið sé beittasta vopn hennar í baráttunni við glæpalýðinn. Verið er einnig að reyna kerfi þetta í öðrum bandarískum borgum. I Chicago er fjarskiptamiðstöðin x aðalstöðvum lögreglunnar í tengsl- um við rafreikni. Lögregian í Chicago notar rafreikni til þess að hafa vakandi auga með ýmsum tilhneigingum i glæpaheiminum og geta sér til um það með einhverjum líkum, á hvaða svæðum glæpir eru líklegir til að fara vaxandi hverju sinni, svo að hægt sé að senda þangað aukið lögreglu- lið fyrir fram. • • : /
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.