Úrval - 01.05.1967, Side 100

Úrval - 01.05.1967, Side 100
98 ÚRVAL um kom henni til að gráta, og að lokum var hún i'arin að snökta há- stöfum. Ýmsir meðal áhorí'enda fóru að sussa reiðir á svip, og þá vfórð móðir hennar eldrauð af sneypu. Einn gestanna rauk burt úr stúkunni í fússi og skellti hurðinni á eftir sér. Dumas einn kom hinni ungu, ó- reyndu stúlku til hjálpar. Hann færði stól sinn að stól hennar og lagði handlegg sinn yfir axlir henn- ar í huggunarskyni. Sarah var enn á valdi æstra til- finninga, þegar hún kom heim. Móðir hennar var alveg bálreið og sendi hana tafarlaust í rúmið. En Dumas, sem hafði verið á sömu skoð- un og Morny um það, að stúlkan virtist hafa leikhæfileika, fylgdi henni til herbergis hennar. Við dyrnar beygði hann tignarlegt höfuð sitt og kyssti á hönd hennar og mælti um leið þessi orð: „Bonsoir, petite étoile!“ (Góða nótt, litla stjarna!) UMRÆÐUEFNI BREIÐSTRÆTANNA. Sarah hafði nú ákveðið að verða leikkona, og hún ákvað jafnframt samstundis að verða bezta og mesta leikkona heimsins. Með hjálp þeirra Dumas og Morny fékk hún tækifæri til þess að þreyta inntökupróf í leik- listarskólann „Conservatorie" og stóðst það. Hún lagði stund á nám sitt af geysilegum krafti, æfði fram- burðar- og frásagnaræfingar tímun- um saman, lærði utan að miklu fleiri hlutverk en henni höfðu verið sett fyrir og lék af geysilegri inn- lifun í tímum. Eftir að hún útskrifaðist svo tveim árum síðar, útvegaði Morny, sem var valdamikiil maður, henni stöðu í leikhúsinu Comcdie Francaise. Að vísu var það minni háttar staða. í ágúst 1862 tilkynnti stjórn þessa fræga leikhúss samt, að ungfrú Sarah Bernhardt mundi þreyta frumraun sína í leiknum „Iphigénie“ eftir Racine. En á frumsýningar- kvöldinu varð hún gripin slíkum ieiksviðsótta, að hún mælti setningar sínar af munni fram eiris og vél- brúða. Og þegar leiknum var lokið, voru eftirfarandi orð hið eina, sem aðalkennari hennar frá leiklistar- skólanum gat stunið upp: „Hvers vegna? Hvers vegna?“ Sarah var al- tekin smán og spurði hann, hvort hann gæti nokkru sinni fyrirgefið sér. „Já, ég get fyrirgefið yður“, sagði hann, „en Racine, liggjandi í gröf sinni, mun aldrei gera það!“ Næstu vikurnar kom Sarah fram í nokkrum öðrum leikritum, en hún sýndi ekki sérstaklega góðan leik. Og flestir voru á einu máli.um, að leikhússtjórninni hefði nú. heldur betur mistekizt, þegar það réð þessa óreyndu stúlku. Sarcey, helzt.i leik- listargagnrýnandi þeirra tíma „af- greiddi" hana bara. með þessari klausu: „Það er ekki nema eðlilegt, að meðal þeirra nýju leikkvenna, sem okkur eru kynntar, leynist ein- hverjar, sem standa sig ekki.“ En leikur hennar utan leiksviðs var áhrifamikill og litríkur. Þar vantaði ekkert á. Sagt er, að eitt sinn, er hún hafði reiðzt þvi, er leiksviðsvörðurinn ávarpaði hana sem „Bernhardt litlu“, hafi hún lamið hann í hausinn með sólhlíf- inni sinni og mölbrotið hana. Það
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.