Úrval - 01.11.1969, Side 74
72
ÚRVAL
Þrátt fyrir mistök og ósigra Burr-
oughs við hin ýmsu störf, sem hann
hafði reynt við, hafði sú marg-
breytilega lífsreynsla hans samt
veitt honum gagnlega þekkingu á
alls konar fólki og umhverfi. Hann
var fjórði sonur majors eins í
bandaríska hernum. Faðir hans
varð síðar efnaður bruggari og raf-
hlöðuframleiðandi í Chicago. Edgar
dreymdi um hernaðarlega frægð og
frama í uppvexti sínum. Hann
reyndi við inntökupróf í West
Point-liðsforingjaskólanum (og féll),
gerðist liðsmaður í 7. herfylki
bandaríska riddaraliðsins í Arizona
(sem Custer gerði frægt), gerðist
kúasmali í Idaho og leitaði að gulli
í ám í Oregon. Hann hafði ekkert
unp úr gullleitinni. Og þá fór hann
að selja bæklinga um ferðalög. —
Hann gekk hús og húsi í Chicago
við þessi sölustörf sín. „Mörgum
árum síðar skrifaði hann á þessa
leið um þessa erfiðu lífsreynslu
sína: „Hefði ég nokkru sinni verið
ánægður með hlutskipti mitt, hefði
aldrei orðið um neinn Tarzan að
ræða. Stundum eru það óhöppin og
erfiðleikarnir, sem færa manni í
rauninni heppnina.“
Burroughs skrifaði yfir 400.000
orð fyrsta árið, sem hann vann að
ritstörfum eingöngu. Hann var sem
skanaður til að skrifa. Hann gat
samið söguþráð í huganum og skrif-
að síðan söguna á 6 vikum. Hann
endurritaði aldrei neitt, sem hann
skrifaði, las það aðeins yfir til þess
að gæta þess, að hvergi væri um
ósamkvæmni að ræða.
Hinn fjölhæfi og margslungni
Apakóngur Burroughs sat á þingi
sem meðlimur brezku lávarðadeild-
arinnar, aðstoðaði Parísarlögregl-
una, bjó stutta hríð í Hollywood og
barðist með bandamönnum á Suð-
ur-Kyrrahafi í síðari heimsstyrjöld-
inni. Þegar Tarzan sneri aftur til
hinnar fornsögulegu frumskóga-
menningar, tók hann að fást við
ólík viðfangsefni. Þá barðist hann
við mauramenn og ljónamenn og
aðrar fjölbreytilegar ófreskjur og
galdra- og særingamenn, sem eru
furðulegri en nokkur fyrirbrigði,
sem um getur í nokkrum bókum
eða öðrum frásögnum frá Afríku.
Burroughs heimsótti aldrei hið
„Myrka meginland". Hann vildi það
ekki. „Ég hef séð meira af Afríku
með hjálp þaulvanra og reyndra
ferðamanna og landkönnuða en ég
gæti nokkru sinni séð með því að
fara þangað sjálfur," sagði hann.
Og hann kom sér í raun og veru
upp mjög yfirgripsmiklu einka-
bókasafni um allt það, er Afríku
snerti, og bætti stöðugt við það.
Árið 1918 hóf Tarzan innreið
sína í þöglu kvikmyndirnar í líki
Elmo Lincolns, sem var 180 punda
þungur lögreglumaður frá Arkans-
as. Þessa fyrsta kvikmynd var tek-
in í fenjum Louisianafylkis og var
ein fyrsta kvikmyndin, sem af
fengust rúmar milljón dollara
brúttótekjur. 14 árum síðar veitti
hið risavaxna Metro-Goldwyn-
Mayerkvikmyndafélag Irving Thal-
berg leyfi til þess að framleiða
kvikmyndina „Tarzan apamaður“.
Thalberg uppgötvaði sjálfur hinn
nýja Tarzan. Það var Olympiu-
sundkappinn Johnny Weissmuller.
Hann hóf frægðarferil sinn sem