Bæjarblaðið Jökull - 22.11.2012, Side 5
Trésmiðja Guðmundar Frið
rikssonar hefur í haust unnið
við að byggja nýtt vigtarhús á
Rifi. Fimmtudaginn 15. nóv em
ber var þeim áfanga náð að
lokið var við að reisa húsið, af
því tilefni var að sjálfsögðu
flaggað og þeir sem að verkinu
koma gæddu sér á kaffi og
marsipantertu.
Áætlanir gera ráð fyrir að
húsinu verði lokað og byrjað að
kynda fyrir jól en stefnt er að
því að húsið verði afhent
fullbúið um miðjan febrúar
2013.
jó
Það er kanski full snemmt
fyrir marga að fara í miðjan
nóvember í jólafrí, en það hefur
einmitt áhöfninn á Steinunni SH
gert. Báturinn var í Bol ungar vík
og kom svo til Ólafs víkur þann
12. og var þá bátur inn búinn að
landa um 80 tonnum í 7 róðrum.
Rifsari SH hefur líka verið þar og
er búinn að landa 76 tonnum í 8
róðrum. Aðrir dragnótabátar eru
með margfalt minni afla og
næstur á eftir þessum tveimur er
Guð mundur Jensson SH sem er
kominn með 17 tonn í 6 róðrum.
Ólafur Bjarnasson SH var komin
með 10 tonn í 4 en hætti á
dragnót og fór á netin og er
búinn að landa tvisvar sam tals
14 tonnum. Gunnar Bjarnas on
SH er kominn með 15 tonn í 6,
Esjar SH 11 tn í 4, Bára SH 6 tn í
2, Sveinbjörn Jakopsson SH 5,5
tn í 5 og svo Egill SH 4 tonn í 2
og báturin hætti á dragnót og er
kominn yfir á netin og hefur
landað 4,2 tonnum eftir eina
löndun. Greinilega mun betri
afli á netin en í dragnótina.
Þessir tveir netabátar sem eru
taldir upp að ofan eru einu og
fyrstu SH netabátarnir í haust
sem ekki eru á skötuselsveiðum
því allir hinir SH netabátarnir
eru ennþá á skötuselsveiðum.
Magnús SH er komin með 46 tn
í 8 róðrum, Bárður SH 18 tn í 6,
Hafnartindur SH 11 tn í 5, Arn ar
SH 8 tn í 3 og Katrín SH 4 tn í 3.
Mjög góð veiði hefur verið hjá
smábátunum og reyndar eru
nokkrir bátar komnir suður fyrir
Snæfellsnes og landað þá á
Arnarstapa, t.d Kristinn II SH,
Særif SH og Tryggvi Eðvarðs SH,
en Tryggvi Eðvarðs SH er
kominn aftur í heimahöfn sína
og er búin að landa 29 tn í 7
róðrum. Er hann þó langt frá því
að vera hæstur SH bátanna því
það er nokkrir ofar en hann, t.d
Brynja SH sem er með 33 tn í 6,
Særif SH 38 tn í 6 og Kristinn II
SH sem er hæstur með 43 tn í 6.
Af öðrum bátum má nefna
Kvika SH sem er með 24 tn í 5,
Ingibjörg SH 14 tn í 4, Kóni II
SH 13 tn í 4 og Guðbjartur SH
13 tn í 1 og báturinn er ennþá á
Skagaströnd og má kanski segja
að hann sé fastur þar vegna
mikilla snjóa og óveðurs sem
hefur verið á því svæði til þess að
hægt sé að sigla bátum í
heimahöfn sína.
Minni bátarnir eru ekki margir
en þó hafa bátar sverris
útgerðinnar fiskað vel og er
Sverrir SH kominn aftur af stað
eftir vélarbilun, eru bæði Glaður
SH og Sverrir SH komnir með
sitthvor 14 tonnin, Glaður SH
eftir 4 róðra og Sverrir SH eftir 5
landanir.
Trollbátarnir hafa fiskað vel,
náð fullfermi, og er Helgi SH
kominn með 97 tonn, Sóley SH
94 tonn, Farsæll SH 87 tonn og
Hringur SH 149 tonn allir eftir
tvær landanir.
Stóru linubátarnir eru ennþá
útum allt land og er Tjaldur SH
með 178 tn í 3, Örvar SH 115 tn
í 3, Gullhólmi SH 99 tn í 2,
Grundfirðingur SH 87 tonn í 2
og þar af landaði báturinn 63
tonnum í Grundarfirði og er
þessi löndun fullfermi hjá
bátunum og með stærri
löndunum hjá bátnum. Sax
hamar SH er með 86 tn í 2.
Balabáturinn Hamar SH er
kominn með 65 tonn í 10
róðrum og ákkúrat meðan að
þessi pistill er skrifaður þá er
Hamar SH nýbúinn að sigla
framhjá Sandgerði á langri leið
sinni frá Hornafirði og til
heimahafnar sinnar á Rifi en
þessi langa sigling tekur Hamar
SH hátt í 30 klukkustundir.
Hamars menn hafa verið fyrir
austan í rúma 2 mánuði og
landað á Djúpavogi hátt í 411
tonnum. Samhliða þessu hafa
miklir flutningar átt sér stað því
að allur afli sem og allir balar
hafa verið eknir frá Djúpavogi og
til Rifs enn þessi vegalend er
mjög löng eða 740 kílómetar
eða 1480 kílómetrar fram og til
baka.
Gísli Reynisson
www.aflafrettir.com
Næstkomandi sunnudag, 25.
nóv ember, verður haldinn stofn
fundur kjördæmisfélags Dögunar
í Norðvestur kjördæmi og verður
hann haldinn í Bjarkarlundi kl.
1418. Í tilkynningu frá Dögun
kemur fram að u.þ.b. 10% af
skráðum félögum í Dögun koma
úr þessu kjördæmi, eða 257 af
2.253 félögum.
Á fundinum verður tekin
ákvörð un um stjórnarkjör. Kos
ning í stjórn eða ákvörðun um
póstkosningu, sem lokið yrði fyrir
þriðjudaginn 11. desember.
Umræður verða um aðferðir
um val á framboðslista í kjör
dæminu, sbr. 39. gr. laga Dögunar.
Félagsmenn eru hvattir til að
kynna sér hvað Bjarkarlundur
hefur upp á að bjóða, en nefna
má að kvöldið fyrir fundinn fer
fram villibráðarveisla á staðnum
með tilheyrandi skemmtidagskrá
og dansleik; ef fólk vill mæta á
laugardeginum, hafa það gott og
gista.
Félagsmenn eru að þessu og
öðru leyti hvattir til að fylgjast vel
með fréttum á www.xdogun.is og
tölvupóstum. Atkvæðisrétt hafa
skráðir félagsmenn Dögunar í
kjör dæminunýir félagar vel komn
ir. Hægt er að skrá sig á heim asíðu
Dögunar www.xdogun.is.
Dögun fundar
Reisugilli
Aflafréttir
Nýir réttir á matseðli