Úrval - 01.10.1973, Qupperneq 53
SKRIFAÐU EINS OG ÞÚ TALAR!
51
bréfið eins persónulegt og unnt er,
þeim mun áhrifameira verður það.
Byrjaðu á réttum stað
Hafðu ekki of langan inngang eða
aðdraganda að efninu. Kastaðu
strax út mörsiðinu, svo að lesand-
inn verði ekki orðinn hundleiður og
kasti öllu frá sér áður en að erindi
bréfs eða ritgerðar kemur.
Það er erfitt fyrir lesandann að
þurfa að lesa lengi, áður en hann
getur gert sér grein fyrir erindinu.
Hann þarf að vita sem fyrst, hvort
svara skal „já“ eða „nei“.
í stað þess að eyða orðum og
tíma í klaufalegan inngang þá
byrjaðu á réttum stað, með því að
minnast á aðalatriðin. Síðar í bréfi
eða ritgerð væri fremur hægt að
koma með einhverjar útskýringar.
Sjáið muninn á þessum tveim
bréfum um sama efni og að nokkru
með sömu orðum:
„Herrar mínir,
Með skírskotun til ofangreindrar
innheimtu, sem þér sögðuð okkur
að gera samkvæmt uppástungu góð
gerðarstofnunarinnar, óskum við að
tilkynna, að hr. Ling hefur ekki
hringt til okkar né sent nokkrar
fyrirspurnir af sinni hálfu.
Þessar upplýsingar eru birtar yð-
ur, ef þér kynnuð að vilja gera
frekari fyrirspurnir um málið.“ —
í þessu bréfi skal allt strikað út
aftur að orðunum Hr. Ling.
Það verður því einfaldlega svona:
„Herrar mínir,
Hr. Ling hefur hvorki hringt til
okkar né sent fyrirspurnir af sinni
hálfu. Hafið þér nokkrar frekari fyr
irspurnir?"
Sjáið muninn, skýrt stutt og skor-
inort, verður ekki misskilið. Allar
orðalengingar á bak og burt. í einu
orði sagt Ljómandi.
Allir lesarar eru í tímahraki nú
á dögum. Því styttri tíma, sem lest-
urinn tekur því betra. Stuttar setn-
ingar eru því vinsælar. Setning sem
er lengri en 40 orð, verður vart les-
in með fullri hugsun, nema með
erfiðismunum. Erfiði er ekki vin-
sælt. Gerið því tvær 20 orða, úr
einni 40 orða setningu. Það er oftast
mjög auðvelt. Athugið aðeins í
hverju aðalhugsunin felst.
Mörgum hættir við að binda sig
við ákveðin uppáhaldsorð, sem
koma þá aftur og aftur, Reynið að
finna slík orð í stílnum og fjarlægið
þau. Setjið önnur í staðinn og allt
í einu verða uppáhaldsorðin ekki
lengur svo dýrmæt.
Það gerir málið mergjaðra og auð
ugra að víxla dálítið til með orð
um sömu hugtök. En umfram allt
ekki skrifað mál heldur einfalt og
hreint.
Skrifið fyrir fólk
Gefið orðum og skoðunum ein-
lægni og mannlegan blæ, snertingu
við venjulegt fólk með hugsun og
tilfinningu.
Tjáið eðlilegar tilfinningar á eðli-
legan hátt. Góðar fréttir skal segja
glaðlega. Séu tíðindin slæm skal
segja og sýna, að þú finnir til þess.
Vertu eins kurteis, hlýlegur og
áhugasamur viðvíkjandi lesanda
eins og þú sætir á móti honum við
matborðið.
Mundu að mannleg vera tekur
við bréfi þínu eða skýrslu. Sjálf-