Úrval - 01.10.1973, Síða 61
HÖFUÐVERKUR ER EKKI ÍMYNDUN
59
verkina með því að breyta um lifn-
aðarhætti og fékk sér vinnu út und-
ir beru lofti. Höfuðverkirnir urðu
verri en nokkru sinni fyrr. Hún
varð að liggja svo tímum skipti með
höfuðið hangandi út yfir rúmstokk-
inn.
„Hver dagur var þolraun," segir
hún. „Síðasta mánuðinn eða svo
vissi ég ekki af neinu í kringum
mig fyrir höfuðverkjunum. Ég gat
hvorki talað né hugsað rökrétt og
heldur ekki sofið reglulega." Um
leið og hún var að missa vonina, fór
hún að hugsa um, hvort lífið væri
þess vert að lifa því.
Þegar hún las um rannsóknirnar,
sem fóru fram á lækningastöðvun-
um, vaknaði örlítil von, og hún fékk
sér strax viðtalstíma. Sérfræðingur
inn þar komst fljótt að niðurstöðu,
þetta var alvarleg migrena, sem
fylgt gátu ofskynjanir. í „útgeisl-
uninni“, áður en nístandi verkur-
inn kemur, sjá sum fórnardýr mi-
grenunnar ekki aðeins bjarta ljós-
glampa, heldur einnig ýmsar ver-
ur og jafnvel ófreskjur.
En sérfræðinginn grunaði, að
Toni þjáðist ekki aðeins af migrenu,
heldur og af höfuðverkjum, sem
stöfuðu af þrýstingi vegna migren-
unnar. En hann vildi vera viss, svo
að hann gaf henni lyf til að linna
kvalirnar af migrenunni og sagðist
ætla að rannsaka hana aftur.
Næst gaf hann henni lyf til þess
að minnka þunglyndishöfuðverkina.
Uppörvandi árangur lét ekki á sér
standa. „Næsta dag,“ segir Tóni,
„fór ég í langa innkaupaferð. Ég
hafði ekki getað gert neitt slíkt í
10 ár.“ Læknirinn hélt meðferðinni
áfram reglulega, og starf hans bar
svo góðan árangur, að Toni gat feng
ið sér heilsdagsvinnu í stað hálfs-
dags. Hún uppgötvaði, að hún gat
„stjórnað“ höfuðverkjunum án þess
að fá tafarlausa læknishjálp. Það
veitti henni þá lausn, sem hún þarfn
aðist. Núna segir hún: „Mér finnst
ég hafa endurfæðzt."
Miklar kvalir, sérstaklega í höfði,
í langan tíma, geta vakið ýmiss kon
ar ótta, en engan þó meiri og út-
breiddari en óttann við heilaæxli.
Rannsakendur höfuðverkja leggja
eftirfarandi líkn með þraut: Höfuð-
verkir, sem stafa af heilaæxlum,
koma venjulega ekki fram fyrr en
mjög seint.
Með öðrum orðum koma önnur
einkenni æxlis fram á undan mikl-
um höfuðverkjum. Einnig er það
sjaldgæft, að fólk með heilaæxli fái
mikinn höfuðverk, en til dæmis
þeir, sem þjást af migrenu (kvalirn
ar eru ekki af illkynjuðum orsök-
um) hafa oft höfuðverk og hann
mikinn.
Ekki fyrir löngu fór maður á
miðjum aldri til sérfræðings og
kvartaði um ákafan og stöðugan
höfuðverk.
Það tók sérfræðinginn ekki langa
stund að sjá, að maðurinn hafði
ekki migrenu, heldur þjáðist hann
svona af ótta við að hann hefði
heilaæxli.
Læknirinn framkvæmdi einfalda
skoðun, athugaði taugasvaranir os
gáði að hvort um heilaskemmdir
væri að ræða. Þar eð hann varð þess
var, að tilfinningalegt ástand manns
ins hélzt óbreytt, gerði hann ná-
kvæmari rannsóknir eins og heila-