Úrval - 01.10.1973, Page 77
74
ÚRVAL
ÚRVALSLJÓÐ
w
I leyni
í stofuna sólin sœla skein.
Þau sátu þar tvö við borðið ein,
og mærin var ung og hjartahrein,
hún hugsaði um þann hinn fríða svein
— í leyni.
Þar sat hún svo stillt og starði í ró
á stafina fögru, sem hann dró,
en fegri var höndin fríða þó —
því fann hún svo títt að hjartað sló
— í leyni.
Hún hlustaði á orð hins unga manns
og undraðist lærdóm kennarans.
Hún geymdi þann alian fræðafans —
og fallegu bláu augun hans
— í leyni.
Og hann, sem þó bar svo létta lund,
hér lék hann sér aldrei neitt við sprund.
Hún þráði þó alltaf þennan fund —
því þetta var hennar sælustund
— í leyni.
Þar situr hann fríðu fljóði hjá
og fingrunum hennar stýra má.
Hann var ekki strangur starfinn sá,
en sterklega höndin titrar þá
-— í leyni.
ÚRVALSLJÓÐ
75
Og hann var í bekknum hvers manns lið
og hafði þar á sér lærdóms snið,
en þegar hann sezt við hennar hlið
þá hefur hann skakkí og roðnar við
— í leyni.
Og honum það stundum hugraun fær,
hve hjartað hans títt og órótt slær,
er á hann þar leit hin unga mær —
en indælar voru stundir þær
— í leyni.
Hún lærði að reikna — skakkt og — skjótt
og skrifaði bæði vel og fljótt.
En röddin hans þýða hvíslar hljótt —
hún hvíslar bæði dag og nótt
•— í leyni.
(Úr ,,Eiðurinn“ eftir Þorstein Erlingsson,
1858—1914).
m