Úrval - 01.10.1973, Page 83
ÚE HVERJU DÓ MOZART?
81
af þeim voru um áttatíu meiri hátt-
ar tónverk. Þetta er að meðaltali
eitt tónverk á hverjum átján dög-
um. í marzmánuði árið 1784 flutti
hann fjórtán konserta á þremur
vikum. Og sjálfur stjórnaði hann
flutningi á óperum sínum. í apríl
1787 varð hann alvarlega veikur,
og upp úr því átti hann við fátækt
að stríða allt til dauðadags og varð
að flytja úr glæsilegri íbúð sinni í
Vín út á land. Heilsu hans fór stöð-
ugt hnignandi. En á þessum árum
samdi hann mörg af sínum mestu
verkum, þeirra á meðal „Töfra-
flautuna" og „Ave Verum“. Mozart
andaðist árið 1791, 35 ára að aldri.
Banamein hans var nýrnabólga.
Hann hafði fengið nokkur nýrna-
bólguköst síðustu árin, en ekkert
bendir til þess, að um kynsjúkdóm
hafi verið að ræða.
Sami maður hefur rekið litla smásölubúð í meira en 30 ár. Hvern-
ig fór hann að því að standa af sér verzlunarmiðstöðvarnar og stór-
verzlanirnar? Hann kveðst fullnægja þörf, sem sé í vaxandi mæli
ófullnægt, og hann verði að þessu til dauðadags. Þegar fólk kaupi
kjötið sitt, kvarti það um hátt verð, tali um hvernig kóteletturnar
séu skornar og yfirleitt um ástandið innanlands og erlendis. „Stóru
staðirnir eru yfirleitt of stórir og hafa ekki tíma til að hlusta á
þetta,“ segir kaupmaðurinn. „En ég er ekki of stór og verð aldrei."
Nikita heitinn Krustjev rifjaði í endurminningum sínum upp sam-
ræður hans og Eisenhowers heitins Bandaríkjaforseta, þegar Krust-
jev kom til Bandaríkjanna árið 1959. Eisenhower sagði á sinn hrein-
skilningslega hátt: „Segðu mér, herra Krustjev, hvernig takið þér
ákvarðanir um fjárveitingu til hermála? Kannski ætti ég fyrst að
greina frá því, hvernig það er með mig. Herforingjarnir mínir koma
til mín og segja: „Herra forseti, við þörfnumst þessara fjárhæða
fyrir þetta og þetta.“ „Við höfum því miður ekki þetta fé,“ segi ég.
Þá segja þeir: „Við höfum áreiðanlegar upplýsingar um, að Sovét-
ríkin hafi nú þegar veitt fé til þessa, sem við förum fram á.“ Þá
gefst ég upp. Þannig kreista þeir peninga út úr mé'r. Segið mér nú,
hvernig er þetta hjá ykkur?“
„Það er alveg það sama,“ svaraði Krustjev. „Þeir segja: „Félagi
Krustjev, sjáið. Ameríkumenn eru að vinna að þessari eða hinni
áætluninni, sem þeir nefna.“ Ég segi þeim, að því miður höfum við
enga peninga til þessa. Svo ræðum við um þetta lengur, og ég læt
þá að lokum fá peningana, sem þeir báðu um.“
Hvenær verður fylgzt eins vel með því, hvernig þingmenn greiða
atkvæði og markatölu knattspyrnukappa?