Úrval - 01.10.1973, Page 106

Úrval - 01.10.1973, Page 106
104 Blaðamenn við dagblöð New Yorkborgar hringdu æ ofan í æ og urðu stöðugt óþolinmóðari. Þegar þeim var tilkynnt, að enn væri ekki vitað um nöfn hinna látnu og slös- uðu, vildu þeir ekki trúa því, að það gæti verið satt. En símhringingar ofsahræddra foreldra ollu samt mestu vandkvæð unum. Einn faðir hringdi frá Mary- landfylki og vildi vita, hvort sonur hans hefði verið í skólavagninum. Marge Krupinski lét hann bíða í 20 mínútur í símanum, meðan hún hljóp á milli skrifstofanna og eftir göngunum í leit að einhverjum, sem kynni að vita svar við spurningu þessari. Loks gat hún tilkynnt föð- urnum, að sonur hans hefði einmitt verið í skólavagninum og væri meiddur. Faðirinn kom heim með næstu flugvél. Símastúlkan Fay Smith þekkti McGuinnesfjölskylduna vel af sér- stökum ástæðum. Kvöld eitt fyrir um ári hafði eldri dóttir hennar far ið í bílferð með Carol McGuinness, beztu vinkonu sinni, og þær höfðu lent í bílslysi. Dóttir Fay hafði lát- izt. Hin sameiginlega þjáning hafði myndað náin tengsl á milli fjöl- skyldnanna, og þau tengsl höfðu haldizt. Nú heyrði Fay hina kunnuglegu rödd Jims McGuinness í símanum. Hann spurði hana, hvort það væru nokkrar fréttir af honum Jimmy, syni þeirra. „Það hafa engar fréttir borizt enn, Jim,“ svaraði Fay. „Ég hringi í þig strax og ég frétti eitt- hvað.“ Hálftíma síðar hringdi móð- ir Jimmis: „Fay, þetta er Peggy,“ sagði hún. „Mér þykir leitt að vera ÚRVAL að ónáða þig enn á ný...“ Rödd hennar dó út. Er hér var komið sögu, hafði síma félagið sent yfirsímastúlku á vett- vang til þess að leysa símastúlkurn- ar á sjúkrahúsinu af, einnig eftir- litsmann, sem gat ráðið fram úr hvers konar óvæntum vandamálum, og viðgerðarmann, sem átti að vera til taks, ef um einhverjar bilanir kynni að vera að ræða. (Símafé- lagið var einnig að láta setja upp átta sjálfvirk símtæki til ókeypis og ótakmarkaðrar notkunar fyrir foreldrana). Fay fór frá skiptiborð- inu og leitaði uppi lækni. „Farðu í skurðslopp og gakktu í gegnum skurðstofurnar," sagði hann. „Ef til vill kemurðu auga á hann.“ Fay klæddi sig í einn af krympl- uðu, grænu sloppunum og hóf eftir- litsgöngu sína um sjúkrahúsið. Hún rýndi fast í hvert andlit af öðru, um leið og hún endurtók „Jimmy McGuinness ... Hefur nokkur séð Jimmy McGuinness?11 Þetta varð brátt að bæn, en hún fékk ekki neitt svar. Jimmy McGuinness var ekki í sjúkrahúsinu. Það var aðeins um einn annan stað að ræða, þar sem hann gat hugsanlega verið ... líkhúsið. „ÞAÐ VAR HRÆÐILEGT, MAMMA“ Tom Martin, stjúpfaðir Teresu McNeelys, á fasteignamatsfyrirtæki, og hann var um þessar mundir að vinna að áætlunum um almenn- ingsgarð fyrir Rocklandhrepp. Þar sem hann sat við skrifborð sitt ki. 8.05 að morgni, heyrði hann aðvör- unarmerkið, sem kallaði sjálfboða-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.