Úrval - 01.10.1973, Qupperneq 129
SIGLINGATÆKNI VÍKINGA
127
óheimskur að því er íslenzkar sög-
ur herma. Hann hét Eiríkur að
kenningarnafni hinn rauði, og hann
hefur án efa vitað fleira um hvað
hann var að gera og gat gert heldur
en sögur segja. Norrænir menn
vissu hvert þeir voru að fara á
skipum sínum, ella hefðu ferðir
þeirra ekki orðið jafn margar,
langar og áhrifamiklar.
Hugsanlegt er að miðunarskífa
víkinga hafi verið, eins og myndin
sýnir. Þrjátíu og tvær áttir eru
markaðar eins og takkar. Þegar til
sólar sást mátti nota þetta áhald
svo sem hér segir: Nauðsynlegt var
að vita um sólarupprás ákveðins
dags — og töflur voru til um það.
Töflur Stjörnu-Odda frá því um
árið 1000 (handrit, sem geymir þess
ar töflur, er yngra) segja t. a. m.
að 5. jóladag komi sól upp mitt á
milli austurs og suð-austurs.
(Stjörnu-Oddi notaði annars „hálft
hjól“, þ. e. hálft þvermál sólar, til
þess að kveða á um það hvernig
hádegisstaður sólar breytist). Væri
miðunarskífan notuð, þá varpaði
miðteinninn skugga þvert á takk-
anum austur-suð-austur, það er í
vestur-norð-vestur. Ætti nú að
sigla í norð-vestur, þá var hinum
lárétta stefnuvísi snúið á takkanum,
sem sýndi þá átt. Svo var skipinu
hagrætt þar til stefni sneri í sömu
átt og vísirinn — og svo var lagt
af stað!
Lækning psoriasis með mataræði
Þýzkur læknir, Fritz Becker að nafni, telur sig hafa náð góðum
árangri í lækningu á húðsjúkdóminum psoriasis, sem heita má ó-
læknandi, með ströngum mataræðisreglum, ásamt sólböðum, loft-
böðum, vatns- og leirböðum, og að mestu leyti án lyfja. Fæðið er
mjólkur- og jurtafæði, en stundum er mjólk einnig bönnuð. Og hann
leggur mikla áherzlu á, að hægðir séu eðlilegar. Hann tekur það
skýrt fram, að enginn þurfi að búast við neinum teljandi bata á
fáeinum vikum, gera verði ráð fyrir a. m. k. hálfs árs strangri með-
ferð. Hann neitar harðlega að taka við sjúklingum til meðferðar um
t. d. mánaðartíma.
Reform-Rundschau.
Fátt er erfiðara en að verða stjarna og láta síðan líta svo út, sem
frægðin hafi ekki breytt manneskjunni.
Kínverjinn Henry Hsieh, sem býr í Oklahoma, var að grafa holu
í garðinum sínum til að gróðursetja tré. Nágranni hans leit yfir til
hans og sagði dálítið háðskur: „Ert þú að grafa fyrir sundlaug?"
Kínverjinn leit ekki upp og mokaði áfram óhaggaður. „Nei, sagði
hann. ,, Ég er á leiðinni heim“.