Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 18
hafði fleygt þeim. En hildir fundust hvergi, og við þau tíðindi
skipti Guðríður litum. Aðrir sáu ekki háska neinn, þótt hundur eða
hrafnar hefðu dregið hildirnar burt, cn Guðríður sagði, að kom-
inn væri annar verri.
Það var ekki nýlunda, að Guðríður tautaði fleira en hægt vat
að taka mark á. En ekki var því vant, að nú hafði hún fá eða
engin svör, þó að ég og fleiri yrtu á hana, og hún tók að signa
varinhellu, bæjargöng cndilöng, fjósdyrahcllur og einkum kring-
um básinn hennar Hjálmu, og óx kerlingu enn þjóstur við að koma
þangað og segir loks:
,,Það kemur hér einhver í dag, þessi andskoti hefur komið á
undan manninum og étið hildirnar og riðið svo blessaðri skepn-
unni.“
Hvorki þorði ég né þurfti að spyrja, hvaða naut það hcfði ver-
ið. Um sumarið hafði ég vcrið að kvöldlagi að sækja kýrnar
út hjá Berhólum, og lá þokuslæðingur kyrr yfir mýrarfit við suður-
horn Langavatns tæpum kílómetra norðar en ég stóð. Heyrði ég
þá langdregið baul norðan úr þokubeltinu og geðillt viðbragð var
að heyra í lok þess gauls, og þóttu mér eyrnahreyfingar Hjálmu
sýna misþokka hennar á, og hún var vitur. Þetta sagði ég ömmu
minni og Guðríði á eftir við mjaltirnar, og fannst þeim báðum
fjarstæða að ætla, að kýr Hvammabænda neðan fyrir heiði gætu
verið svo langt að heiman að kvöldlagi sem baulið var. Guðríður
hélt það Þorgeirsbola - „og ekki vildi ég ríða Dauðhylsvað í
kvöld.“ Vaðið er rétt við fitina. Aldrei hafði Geitafellsá, sem er
lítil, grandað manni nema í Dauðhyl þessum ofan vaðsins, þar
sem yfir var farið í átt til bæjar að Langavatni. Amma aftók, að
Guðríður færi að koma því inn hjá mér, að þessi kálfur, sem
hefði víst vcrið að flækjast milli bæja í þoku, væri mannafylgja
og óvættur, og dróst það því um nótt, að ég fengi að heyra sögu
Guðríðar um Þorgeir og ættir frá honum og andstæðingum hans,
en nautið fór oft fyrir niðjum hvorratveggja. Aldrci fékkst hún
til að segja mér, hvað af hlytist, ef Þorgeirsboli drykki blóð eða
æti eitthvað blóðfullt cins og hildir, og kvað vcra særingamanna
einna að skilja það.
Enn varð mér annt um að vita, hvort Þorgeirsbola væri ekki
16
Goðasteinn