Goðasteinn - 01.09.1969, Qupperneq 26
ég þá fljótur að losa mig við föturnar og stökkva út. Skildi svo
með okkur í það skiptið. Þegar ég fór frá Höfn í janúar í þessa
vist, kynntist ég dönskum kaupfélagsstjóra, Jens Lund að nafni.
Sýndi hann mér þá vinsemd að útvega mér vinnu á góðum stað
frá i. maí til i. nóv. 1917. Var þetta á stórum herragarði, Gunncr-
slevholm, um 5 km frá Næstved. Þar dvaldist ég sem landbúnaðar-
nemi um sumarið og haustið. Vorum við átta nemar, jafnmargir
vinnumenn cg svo átján húsmenn á þessu stóra búi. Þarna var
mikili stéttamunur og fólki raðað í virðingarstiga eftir þeim
störfum, sem það hafði með höndum. Á búinu voru um 250 kýr
og jafnmargt af öðrum nautpeningi. Uppskera korns var 7-8
þúsund tunnur, aðallega vetrarhveiti, bygg og hafrar. Rúgur var
ckki ræktaður, því að leirjörðin, sem þarna var, hentaði ekki fyrir
hann. Sandjörð cins og víða á Jótlandi er aftur á móti talin
bezta rúgjörðin.
Allt korn var slegið með vélum, er slógu og bundu kornstangir
í bindi, cr svo voru þurrkuð úti í kornröðum. Síðar var þcim
ckið heim og kornið þreskt í stórri sjálfhreinsandi þreskivél, cr
knúin var með gufuorku. Öll uppskeruvinna og jarðvinnsla var
unnin með hcstum, og vorum við nemarnir látnir vinna sem mest
með þeim. Lærði maður því vel að umgangast hesta og bcita
þeim til allrar vinnu á ökrunum.
Eigandi þessa búgarðs var af Neergaardsætt og talinn stór-
auðugur, cnda barst hann mikið á. Bjó í stórri höll og hafði
marga þjóna. Bústjórn önnuðust þrír ráðsmenn, er höfðu á hendi
verkstjórn og bókhald á herragarðinum. Skiptu þeir nokkuð með
sér verkum eftir búgreinum. Allir voru þeir strangir við okkur
ncmendurna og voru skammaryrði tíð, ef citthvað bar út af. En
samt fannst mér ég hafa að ýmsu leyti gott af veru minni þarna.
Kynntist ég þar öllum venjulegum störfum við akuryrkju eins og
hún var bezt rekin í Danmörku á þcssum tíma.
1 kringum herragarðinn var kragi af húsmannsbýlum. Við
hvert hús var lítill garður með trjám og matjurtum, en annað
land til ræktunar höfðu hinir 18 húsmenn ckki. Húsnæði höfðu
þcir frítt, en Iifðu að öðru leyti af vinnu á stórbúinu fyrir lágu
kaupi, þrem til fjórum krónum á dag.
24
Goðasteinn