Goðasteinn - 01.09.1969, Qupperneq 28
nýtt fyrir mcr, og var scm ég væri komínn í annan heim. Þóttí
mcr mikið til þeirrar þekkingar koma, sem danskur búskapur
byggðist á. Sjóndeildarhringur minn víkkaði, og cg öðlaðist skiln-
ing á þeim verkefnum, sem mér virtust liggja framundan.
I skóla þessum voru ekki tekin próf, en engu að síður virtust
nemcndur leggja sig fram um að tileinka sér námsefnið sem
bezt. Flestir voru nemendur 130 í skólanum, en að sex mánuðum
liðnum fækkaði mikið, þar sem færri tóku þátt í níu mánaða nám-
skeiðinu, sem ég var á. Því lauk 31. júlí 1918. Ég var þá óráðinn,
hvað taka skyldi fyrir. Helzt vildi ég fara á Landbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn, sem var mér þó ekki kleift í svipinn
sakir fjárskorts. Hugðist ég því fyrst vinna mér inn peninga og
langaði einnig til að kynnast tilraunastarfsemi í verki, en af
henni hafði cg fengið nokkra nasasjón í fyrirlestrum í skólanum.
Bað ég því skólastjóra minn að útvega mér stað, þar sem ég
gæti kynnzt jarðræktartilraunum. Gerði hann það með miklum
ágætum, því að hann réð mig á tilraunastöð józku búnaðarfélag-
anna í Skanderborg. Aðalráðunautur og tilraunastjóri var M.
Kristensen, maður á miðjum aldri.
Þess skal til gamans getið, að árið 1939 komu danskir skóla-
stjórar og skólamenn í heimsókn að Sámsstöðum og var fyrrum
skólastjóri minn, Bredker og kona hans með í förinni. Virtist mér
hann gleðjast yfir því, að nemandi hans frá Tuneskólanum hefði
það ræktunarbótastarf með höndum, sem þá var rekið. Svo minnis-
góður var Bredker, að hann sagði frá því í ræðu, hversu þessi
nemandi hefði stundað námið af kostgæfni og hefði það spáð
góðu um framhaldið, svo sem hann taldi, að orðið hefði með
stofnun og starfrækslu tilraunastöðvarinnar á Sámsstöðum. En
þetta var aðeins innskot í frásögn mína frá þessum árum.
Ég var við jarðræktartilraunir í Skanderborg til 1. nóvember,
cn þá var slíkri starfsemi lokið. Þurfti ég þá að útvega mér starf
yfir veturinn, því að heim til Islands ætlaði ég mér ekki að
fara í bráð. Komst ég þá að því, að það vantaði mann við út-
reikninga á dreifðum tilraunum. Réðst ég í það starf og vann
að þessum útreikningum fram í febrúar og síðan önnur skrifstofu-
störf, skýrslusöfnun og fleira. í starfi þessu gafst mér gott tæki-
26
Goðasteinn