Goðasteinn - 01.09.1969, Page 29
færi til að kynnast jarðræktartilraunum, jafnframt javí scm ég fékk
tíma til að lesa ýmis rit um ræktun og tilraunir í Danmörku.
Var þetta því hinn bezti tími til að afia sér þekkingar á land-
búnaði, því að skrifstofuvinnan var aðeins frá kl. 9 á morgnana
til kl. 6 síðdegis. Kaupið var ekki mikið eða kr. 60 á mánuði,
en uppihald var ókeypis.
Þegar komið var fram í apríl, tók ég að hugsa til vistaskipta.
Varð það að ráði, að ég fengi vinnu á tilraunastöð danska ríkis-
ins á Rosevangen.
Fór ég þangað síðast í apríl og ætlaði að vera þar scm nem-
andi á lágu kaupi, eða kr. 50 á mánuði, sumarið 1919. Þá um
sumarið lézt faðir minn og fór ég til Islands síðast í júlí. Fóstur-
móðir mín óskaði eftir, að ég kæmi heim, þó að það væri ekki
hagkvæmt fyrir mig, því að ég vildi vera lengur og reyna, hvort
ég gæti komizt til náms á Landbúnaðarháskólanum í Kaupmanna-
höfn um haustið.
Ég fór með Islandinu síðast í júlí og var nokkuð lengi á leið-
inni, því að skipið fór norður fyrir land. Þegar ég kom heim, var
heimili föður míns illa statt fjárhagslega, og Sverrir bróðir minn
var þá aðeins n ára að aldri. Enga vinnu fékk ég í bili, en úr
rættist þannig að ég komst í tímavinnu í gróðrarstöð Búnaðar-
félags íslands nokkrar vikur fram til loka september. Réðst ég
síðan til kúahirðingar í Briemsfjósi hjá Eggert Briem frá Viðey.
Var ég við fjósastörf veturinn 1919-20 og hafði kr. 250 á mánuði,
en varð að kosta mig að öllu leyti sjálfur. Hirti ég um veturinn
20 kýr og 6 hesta. Um mjaltir sá ég þó ekki. Eftir rniðjan maí
tók annar maður við starfinu en ég réðst þá sem kaupamaður
úti í Viðey og var þar fram í september um haustið. Vistin þar
var ágæt, en vinnutími langur eins og þá tíðkaðist. Um haustið
hafði ég mjög stopula vinnu, en þó það mikla, að ég gat séð
fyrir heimili. Það var að vísu lítið, og heimilismenn voru Sverrir
bróðir minn, sem þá var í barnaskóla, móðir hans og ég.
Um sumarið 1920 ætlaði ég að freista þess að fara á Búnaðar-
háskólann, en varð að hætta við það sakir fjárskorts, því að
engir vildu leggja mér lið til framhaldsnáms. Þótti mér þetta
mjög slæmt, en fannst að ég hefði skyldum að gegna við bróður
Godasteinn
27