Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 34
eigin landi. Nýverið minntumst við hálfrar aldar afmælis full-
veldis þjóðarinnar og aldarfjórðungs afmælis lýðveldisins. Það
voru vissulega tilefni til að halda hátíðir. Við höfum lifað af,
hafizt úr örbirgð til bjargálna, varðveitt tungu okkar og menn-
ingararf og unnið fjölmarga sigra við uppbyggingu athafnalífs
og aðstöðu í landinu.
Er þá allt scm skyldi hjá okkur? Er þjóðin samstillt og ein-
huga í því að halda áfram að vera til sem sérstakt og sjálfstætt
stjórnmálalegt og menningarlegt samfélag? Margt bendir ótvírætt
í þá átt, en samt bregður yfir skuggum hér og þar. Viss sjúk-
dómseinkenni í þjóðlífi okkar eru augljós. Mikið er rætt um
frelsi og lýðræði, án þess að alltaf sé athugað að láta ábyrgð og
skipulag fylgja með. Ýmsir flokkar og hagsmunahópar setja stund-
um eigin hagsmuni ofar velferð heildarinnar. Ný samgöngutækni
hefur gjörbreytt afstöðu landsins til umheimsins og rofið ein-
angrun þjóðarinnar. Sumir virðast þola slíkt illa og glata þjóð-
legri vitund við minnstu golu utan frá. Ný kynslóð í Iandinu virð-
ist hafa furðu lítil tengsl við fortíð og sögu þjóðarinnar, uppeldi
virðist víða vanrækt og heimilislíf sýnist fara dvínandi. Margir
hinna gáfuðustu og menntuðustu flytjast úr landi fremur en vinna
hér fyrir eitthvað færri krónum, algengt er að bæði einstaklingar
og félagsheildir eyði meiru en aflað er, sparnaður og ráðdeild
cru lítt þekkt fyrirbæri í seinni tíð, drykkjuskapur, skrílslæti, ó-
ráðvendni og glæpir og ýmis önnur úrkynjunareinkenni hafa farið
hraðvaxandi. Einkum bcr á slíku meðal ungs fólks og sýnist þar
vera að myndast eitthvert félagslegt botnfall líkt og sjá má í
milljónaborgum erlendis.
Það er augljós staðreynd, að við erum of fá og höfum of
mikilvægu hlutverki að gegna til þess að hafa ráð á því að láta
upplausn viðgangast og sóa þannig fólki til einskis gagns fyrir
sjálft sig og samfélagið og verra en það. Þess vegna er það
skylda okkar að gera allt, sem við getum mcð skipulegum að-
gerðum, til að koma í veg fyrir eyðileggingu og leitast við að
gera svo mikið úr sérhverjum einstaklingi sem mögulegt er. En
fyrst af öllu ber okkur að gera okkur ljósa grein fyrir því, hverí
32
Goðasteinn