Goðasteinn - 01.09.1969, Síða 35
við stefnum, hvert sé hið raunverulega markmið þjóðarinnar í
nútíð og framtíð, og vinna síðan markvisst að því.
Ganga má út frá því að meginþorri hugsandi fólks í landinu
hafi það sem markmið að vilja halda áfram að byggja upp og
iifa menningarlífi í frjálsu og sjálfstæðu landi. Við höfum hlut-
verki að gegna gagnvart forfeðrum okkar, sögu og landi. Við
höfum líka hlutvcrki að gegna gagnvart öðrum þjóðum og heims-
menningunni allri. Við erum ábyrgir fyrir varðveizlu og fram-
haldi cinstæðs og stórmerks menningararfs, sem er ekki ómcrkur
þáttur hinnar norrænu og vestrænu menningar í heild. Því skul-
um við gera okkur Ijóst, að á okkur hvílir mikill vandi, og einnig
að við náum aldrei góðum árangri, ncma með samstilltum átök-
um og mikilli og markvissri vinnu. Það sannast hér sem í öðru,
að ekkert, sem máli skiptir, fæst nema nokkuð sé fyrir því haft.
Hér getur aldrei þrifizt og dafnað neitt happdrættisþjóðfélag.
Að trúa slíku er blindni og skammsýni.
Við skulum því gera okkur ljósa grein fyrir vandamálunum og
bregðast því næst við þeim með viðeigandi og samstilltum að-
gerðurn. Hér duga engin vettlingatök.
Hefja þarf allt, sem þjóðlegt cr, til vegs og virðingar. Nota
skal fjölmiðlunartæki cins og bækur, blöð, útvarp, sjónvarp og
kvikmyndir til að hamra sífelit á ágæti þjóðlegrar menningar, ís-
Icnzkra atvinnuvega, innlends framtaks, fegurðar lands okkar og
kosta þess. Hið sama skal gcrt í skólunum frá fyrstu stigum upp
til háskóla og gegnsýra alla fræðslu og skólastarf mcð þjóðlegum
anda og stöðugri áherzlu á ábyrgð okkar og skyldum við landið
og þjóöina í fortíð og framtíð. Hið sama skal gilda um hvers
konar félagsstörf. Þar skal og hinn þjóðlegi andi svífa yfir vötn-
unum. íslenzkum atvinnuvegum skal mikill sómi sýndur og gert
að hcilagri skyldu að vernda þá, efla og styðja sem bezt.
Sífellt þarf að brjóta upp á nýjum viðfangsefnum til eflingar
iandi og lýð og standa skal dyggan vörð um tungu, bókmenntir,
gæði lands og sjávar og hvaðeina, sem gildi hcfur fyrir menningu
okkar og athafnalíf. Aðkallandi er að uppvaxandi kynslóð fái ríku-
leg tækifæri til að vinna afrek og drýgja dáðir, leggja þarf áherzlu
Godastein/i
33