Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 36
á, að ungt fólk kynnist landinu sem bezt, náttúru þess og atvinnu-
lífi. Slíkt ætti að vera auðvelt með skipulegum aðgerðum og kæmi
þegnskylduvinna í ýmsum myndum til athugunar, sumarskólar,
ferðalög um byggðir og óbyggðir og sitthvað fleira. Allt þetta
þarf að gera og miklu meira.
Ef til vill er þó brýnasta verkefnið að losa þjóðina við hvim-
lciða minnimáttarkennd gagnvart öðrum þjóðum, sem er arfur
frá myrkum öldum fátæktar, eymdar og erlendrar valdstjórnar.
Þessi leiði kvilli kcmur m. a. fram í því að telja allt útlent betra
en íslenzkt og fylgja erlendum fordæmum gagnrýnilaust í alltof
mörgum málum. f þessu sambandi má minna á varnarmál lands-
in.s sérstaklega. Gagnvart þeim höfum við hlýtt erlendum sér-
fræðingum of lengi, og er tími til korninn að við ráðurn fram úr
þeim. sjálfir.
Gagnvart vandamálum okkar og verkefnum þarf forysta þjóð-
arinnar að gjörbreyta um starfshætti og viðhorf. Hún þarf að
hafa frumkvæði um að lyfta merki þjóðlegs sjálfstæðis heima
fyrir cg út á við. Henni ber með orðum og athöfnum að veita
þjóðinni þann svip þjóðlegs viðhorfs og metnaðar, sem fylgja þarf
stjórnmálalegu, cfnalegu og menningarlegu sjálfstæði. Valdi for-
ystumenn þjóðarinnar á öllum tímum þessu hlutverki, mun ekki
standa á fólkinu í landinu að fylgja eftir, því að stofninn er
traustur og góður.
34
Godasteinn