Goðasteinn - 01.09.1969, Side 37
Auðunn Bragi Sveinsson:
Undir
Eyjafjöllum
Fyrir 10-15 árum, þótt ekki sé farið lengra aftur í tímann, var
erfiaðara að komast í skólastjóra- eða kennarastöðu en nú gerist. f
Reykjavík mátti scgja, að aðrir kæmust ckki að en fáir útvaldir.
Voru tíu cða jafnvel fleiri um hverja kennarastöðu, scm losnaði.
Ymsar leiðir, sumar harla ankannalegar, voru reyndar til að kom-
ast á þessa jötu í höfuðstaðnum. Skal ckki farið nánar út í þetta
mál hér, enda varla svo að prenthæft mætti teljast, ef rakið væri
til hlítar.
Nú hefur hér orðið breyting á. Rifizt er um hvern menntaðan
kennara, og þeir gripnir í kennslu, sem vitað er um, að einhverja
menntun hafa auk barnaskólanáms og kunnugt er, að ckki eru
haldnir hættulegum smitsjúkdómi eða geðvciki á háu stigi. Hefur
ástandið í þessum efnum algjörlega snúizt við, eins og segja
mátti um annan vinnumarkað til skamms tíma. Sér í lagi hefur
gengið illa að fá kennara að barnaskólum í sveitum og þorpum,
sem eru í lengri fjarlægð en það frá höfuðborginni, að fara megi
til og frá á tveimur klukkustundum. Ýmis sú aðstaða, sem ungt
fólk girnist svo mjög nú, cr þar ekki fyrir hendi.
Goðasteinn
35