Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 40
eftir hóflcgan tíma miðað við vcgalengd. Þar tók ísleifur á móti
okkur. Drukkum við kaffi í lítilii stofu í húsi hans, sem komið
var vei til ára. Eitt sinn hafði verið kennt börnum í þessari stofu.
Hafði m. a .Ólafur Gunnarsson, síðar sálfræðingur, kennt þar
cinn vetur. Hlýtur að hafa verið býsna þröngt á þingi þar, en
cinhvern veginn blessaðist þetta allt saman. Þá athugaði ég hús-
næði á hinum bænum í Drangshlíð, scm mér stóð til boða fyrir
mig og fjölskylduna. Var það ein stofa á efri hæð hússins, 14
metrar að flatarmáli. Auk þessa stóð til boða að fá aðgang að
cldhúsi, geymslu, baði og þvottahúsi. Allt skyldi þetta gilda 250
krónur á mánuði. Leizt mér plássið allgott, þó þröngt væri, ákvað
fyrir mína parta að taka það. En þá var eftir að líta á væntan-
lcgt kcnnsluhúsnæði. Var það á næsta bæ, í Skarðshlíð. Svo stóðu
nú málin, að ekkert sérstakt skólahús var til í hreppnum. Hafði
frá upphafi skólaskyldu eða fræðslulaga (1907), verið kcnnt á
hinum og þessum bæjum, eins og víðast tíðkaðist í sveitum, cn
nokkur síðustu árin hafði verið kennt í litla samkomuhúsinu á
staðnum, cn var nú ekki talið lengur boðlegt til skólahalds. Þá
hittist svo á, að sonur Jóns oddvita Hjörleifssonar í Skarðshlíð,
Sveinn, var að byggja íbúðarhús á nýbýli sínu úr jörð föður síns.
Hafði hann lokið innréttingum á neðri hæð hússins, þar sem hann
bjó með fjölskyldu sinni, cn efri hæðin var einn geimur. Tók nú
skólanefndin það ráð að taka þetta húsnæði á leigu til þriggja
ára og greiddi fyriríram. Skyldi ieigusali leggja línóleum á gólf
cn hvítta veggi mcð „snowcem“. Þcgar okkur félaga bar að með
Isleif í broddi fylkingar, var ckki enn búið að gera þessar endur-
bætur á húsnæðinu. Fór ég nú að litast um í væntanlegri skóla-
stofu. Þctta var heljargcimur. Gluggar tvcir voru á stöfnum,
móti suðri og norðri. Þakgluggi einn var svo til suðurs. Þrjú
ijósastæði í lofti, cn perur engar. Var gert ráð fyrir, að kennt
yrði í dagsbirtu, jafnvcl í svartasta skammdeginu. Mér leizt auð-
vitað ckki alls kostar á kennslustaðinn. En ég var ákveðinn að
takast á ný á hendur kennslustörf. Ég vissi, að húsnæðið var
ckki allt, fleira kæmi til. Ef nemendurnir yrðu geðfelldir og dug-
legir við námið, mundu ytri örðugleikar flýja og verða að cngu.
Lauk nú hcimsókninni, og haldið var á ný til Hvolsvallar. Þang-
38
Goðasteinn