Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 41
að komum við kl. rúmlega n um kvoldið, en lögðum af stað
þaðan kl. 6.20. Gisti ég nú aðra nóttina hjá skólastjórahjónunum
og leið vcl. Til Reykjavíkur komst ég með áætlun daginn eftir,
mánudaginn 26. október.
Næsta dag lallaði ég niður á Fræðslumálaskrifstofu, sem enn
var til húsa í Arnarhvoli, en ekki eins og nú við þann krókveg,
sem Borgartún heitir. Talaði við Ingimar Jóhannesson fulltrúa,
Hann taldi mig fremur á að sækja um stöðuna eystra cn hitt,
reyndar færi umsókn mín aðeins í Menntamálaráðuneytið, cn
ekki til skólanefndar, eins og venja væri, þar sem svo áliðið var
orðið. Umsókn skilaði ég síðan af mér miðvikudaginn 28. okt. Er
ég lagði umsóknina á borðið hjá fræðslumálastjóra, hældi hann
skrift minni og sagði eitthvað á þá leið, að ég skrifaði mjög góða
rithönd, hvað sem hæft hefur verið í því. Daginn eftir var um-
sókn mín komin niður í Menntamálaráðuneyti, því að nú þurfti
víst að hafa hraðann á. Virtist nú ráðið, að ég fengi skólastjóra-
stöðuna undir Fjöllum, svo að ég fór að gera ráðstafanir varð-
andi flutning austur, leigði herskálann (braggann) ungum hjón-
um. Beið svo cftir setningarbréfi fyrir stöðunni. Þótti að vísu
leitt að þurfa að bíða, en taldi ckki rétt að flytja fyrr en pappírar
væru klárir.
Loksins fékk ég svo að vita það miðvikudaginn 11. nóv., að
ég hefði verið settur skólastjóri í Austur-Eyjafjallaskólahverfi um
eins árs skeið, frá 1. sept. 1953 að telja. Undir plaggið skrifuðu
síðan ráðherra mcnntamála, Bjarni Benediktsson og skrifstofu-
stjórinn í Menntamálaráðuneytinu, Birgir Thorlacius. Var þetta í
þriðja sinn, sem ég var settur (auðvitað) til kcnnslu. „Skyldi það
ckki duga til, að ég haldi kennslu áfram, a.m.k. nokkur ár?“,
skrifaði ég í dagbók mína 11. nóv.
Laugardaginn 14. nóvember átti ég tal við Bjarna M. Jóns-
son námsstjóra í Fræðslumálaskrifstofunni. Ræddum við um vænt-
anlegt starf mitt eystra. Nú var ég orðinn skólastjóri að nafninu
til, en það hafði ég ekki reynt fyrr, og var mér því þörf ýmissa
leiðbeininga. Tjáði Bjarni mér, auk ýmislegs, sem væntanlegt starf
áhrærði, að nú hefði skólastofan í Skarðshlíð verið dúklögð og
veggir hvíttaðir með „snowcem". Þóttu mér það góðar fréttir.
Godasteinn
39