Goðasteinn - 01.09.1969, Side 42
Salerni væri inn aí kcnnslustofunni og sérinngangur í hana. Hugs-
aði ég nú gott til starfsins - eftir ástæðum.
Næstu tveir dagar fóru í ýmislegt snatt. Taka þurfti út laun,
greiða skatta hjá tollstjóra, borga sjúkrasamlagsgjöld og fá flutn-
ingsvottorð frá Samlaginu, kaupa föt, segja upp dagblöðum, og
síðast en ekki sízt kaupa vandaða skjalatösku, sem stöðunni
hæfði.
Mánudaginn 16. nóv. var ofsarok allan daginn. Rafmagnslínur
frá Sogi slitnuðu og rafmagnslaust varð í borginni um skeið.
Ekki var lokið við að pakka niður og ganga frá farangri, einnig
að koma því fyrir í bragganum, sem bíða átti til næsta vors, fyrr
cn klukkan hálf tvö um nóttina.
Næsta morgun var síðan haldið af stað austur með hálfkassa-
bifreið frá Kaupfélaginu Þór á Hellu. Mestallt það dót, sem ég
ætlaði mcð, komst í vöruskottið. Þó ekki skápur einn stór. Var
hann fluttur síðar austur af sömu aðilum. Mcð okkur hjónunum
voru þrjú börn: Sveinn, 4 ára; Kristín 3 ára og Arnór 1 árs. Ferðin
austur sóttist bærilega, þó að nokkur hríðarjagandi væri á. í bíln-
um þckktum við engan, en talsvert ræddi ég við mann einn,
Svein Jón Svcinsson, múrara að starfi, frá Stóru-Mörk undir
Vestur-Eyjafjöllum. Lét hann mig heyra nokkrar vísur eftir sig,
enda maðurinn vel hagmæltur, eins og Rangæingum er bczt kunn-
ugt.
Var nú komið að Hellu. Þar skyldi hafa upp undir tveggja
stunda viðdvöl áður en haldið skyldi áfram austur undir Fjöll. Nú
þckktum við enga á Hellu, en viðstaðan þar alllöng og slæmt að
vcra inni í bílnum allan þann tíma með krakkana. Þá var það, að
Sveinn Jón bauðst til að koma okkur í húsaskjól á Hellu hjá kunn-
ingjafólki sínu, meðan bíllinn héldi kyrru fyrir á staðnum. Fylgdi
Sveinn Jón okkur að húsi einu ofarlega í plássinu. Bjó þar fólkið
frá Bakka í Austur-Landeyjum, Loftur Þórðarson og Kristín Sig-
urðardóttir, fyrrum ljósmóðir, bæði öldruð, ásamt sonum sínum,
Þórði og Birni. Var okkur tekið með ágætum. Eigi að síður
var Loftur að heyja sitt helstríð um þetta lcyti. Þegar okkur bar
að húsinu, mættum við sóknarprestinum, séra Arngrími Jónssyni
í Odda, en hann hafði verið í hcimsókn hjá gamla manninum.
40
Goðasteinn