Goðasteinn - 01.09.1969, Page 46
rnínu samt. En hvcnær verður fundínrl gallalaus maður, ekki sízt
kcnnari?
Skólastarfinu var lokið. Það hafði gengið betur en ég bjóst
við. Þrátt fyrir frumstæð ytri skilyrði, gekk allt sinn gang, kannski
ckki beint hraðan, cn nokkuð jafnan. Er ég náttúrlega ekki að
scgja, að betur hcfði ekki átt að geta gcngið, ef umgjörðin hefði
vcrit) ögn glæstari en raun var á. En það er nú einu sinni svo,
r.ð fólkið cr híbýlunum æðra. I skóla veltur mcira á samvinnu
kennenda og nemenda en öllu því, scm út snýr, hversu fullkomið
sem það kann að vera.
Örlögin hafa víst ekki ætlað mér ncma eins vctrar dvöl undir
Fjöllum. Það hcfur kannski orðið mér fyrir bcztu. Gæti ckki
hugsazt, að mynd sú, sem ég geymi í huga mínum af Eyjafjalla-
sveit og Fjallabúum eftir eins vetrar dvöl, hefði orðið öðruvísi
að lengri samvistum loknum? Ég bara spyr. Og að lokum þakka
cg Fjallabúum gömul kynni.
Litið til baka
Mörg eru árin farin frá mér nú
ferskur var dagur í öndverðu - og einnig trú
á lífið, starfið, ástina, auð og völd.
Allt þctta hvarf bak við ævinnar gluggatjöld.
Andrés frá Hólmum
44
Goðasteinn