Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 76
Ritdómur
Þjóðsögur og sagnir
Safnað hefur og skráð Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm
Almenna bókafélagið 1962. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar
Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm var fædd á Kálfafellsstað í
Skaftafellssýslu árið 1845. Forcldrar hcnnar voru síra Þorsteinn
Einarsson og kona hans, Guðríður Torfadóttir. Síra Þorsteinn var
hagleiksmaður mikill. Hann var prestur í 36 ár og alltaf á Kálfa-
fellsstað, til æviloka, 1877. Frá 17-21 árs aldri var Torfhildur í
Reykjavík að ýmsu námi og síðan í námsdvöl í Kaupmannahöfn.
Hana langaði rnjög í latínuskólann í Reykjavík, en konur höfðu
þá eigi réttindi til þcss að nema þar. Torfhildur giftist 1874 Jakobi
Hólm verzlunarstjóra, en missti hann ári síðar. Liðlega þrítug að
aldri fluttist Torfhildur síðan til Vesturheims. Þar (í Kanada)
dvaldist Torfhildur í 13 ár. Hún nam pentlist, meðal annars
að mála á pell með olíu og bronsi. Enn eru til í Reykjavík slíkir
hlutir, auk málverka, er Toríhildur hcfur gert, og sýna þcir glöggt
listfengi hennar. En cigi virðist sú íþrótt hafa orðið hcnni tekju-
lind vestra. Kcnnsla ungra stúlkna og ritstörf síðar meir urðu
aðalstörf Torfhildar Hólm. Þá er dvöl hcnnar erlendis lauk, festi
hún heimili í Reykjavík. Eftir að hún komst á cfri ár, fékk hún
ritstyrk frá alþingi og hélt til æviloka í einhverri mynd. Á þeim
árum var nýlunda, að konur hlytu þess háttar hlunnindi og viður-
kenningu.
Þjóðsögurnar skráði Torfhildur að mestu leyti tvö fyrstu ár
74
Goðasteinn