Goðasteinn - 01.09.1969, Qupperneq 83
sömum foreldrum. Sagði hann mér, að sér fyndist bernska sín
hafa mcst verið bjart sólskin. Segja má, að honum hafi í einu
vctfangi verið svipt frá bernsku til vanda og ábyrgðar fullorðins-
ára, cr hann þrettán ára að aldri missti móður sína og ungan
bróður á sama degi og föður sinn tæpum tveimur árunt síðar.
Þaðan af varð hann cinn að ráða fram úr vandamálunt æsku og
uppvaxtar.
Jón giftist 1906 Jónínu Sigurðardóttur frá Hagakoti í Holtum,
cn skömm varð samvera þeirra. Dó Jónína 1912. Tvcimur árum
síðar giftist Jón Steinunni Loftsdóttur frá Stúfholti, og bjuggu
þau allan sinn búskap á Lækjarbotnum við barnalán og mannhylli.
Steinunn dó 1958.
Jón byrjaði búskap fátækur að fé en ríkur aö tápi og góðum
vilja. Hann barðist sigursælli baráttu til þess að verða meir cn
bjargálna bóndi, sem sá mönnum og málleysingjum vel borgið
og rækti vel allar skyldur við sveit og þjóðfélag. Vinum sínum var
hann heill og hollráður, sleit aldrei tryggð, sem tekin var í garð
góðra manna. Mcð fögnuði rækti hann hið forna boðorð um
skyldurnar við gest og gangandi. Fræðari var hann meiri en flestir
aðrir í bændastétt, ríkur að þckkingu á liðinni tíð og alltaf búinn
þess að láta 'hana öðrum í té, er þrá höfðu til að hlusta og nema.
Þcssi vinur minn stóð ckki óstuddur í lífsins hörðu baráttu.
Hann átti að fagna ást og dug tveggja góðra kvenna og ágætra
barna. Hann þekkti sorgina ekki síður en gleðina, en sorgin bug-
aði hann ekki, og hann gekk óskelfdur móti örlögum sínum.
Leiðir okkar Jóns á Lækjarbotnum lágu þá fyrst saman, cr
hann var orðinn gamall maður. Milli okkar skildu mörg ár og
mjög ólík lífsreynsla. Eigi að síður eignaðist ég í honum cinn
minn bezta vin. Ég naut þeirrar ánægju að fá hann sem gest á
heimili mitt, og þar hafa kornið fáir betri cn hinn lífsglaði, fjöl-
vitri maður. Fáa gat skemmtilegri í samræðu. Þar var af nógu
efni að taka í nútíð og fortíð. Jón fylgdist vel með öllu, sem
gerðist í samtíð hans, og átti sínar ákveðnu skoðanir, mótaðar
af hans eigin glöggskyggna mati.
Miklu meir féll þó ræða okkar í farveg fornra þjóðhátta, og til
Jóns sótti ég mörg fræði varðandi líf liðinna kynslóða í Land-
Goðasteinn
81