Goðasteinn - 01.09.1969, Síða 87
Ólafssteinninn.
Ljósm.: Guðgeir Magnússon
Mynd Ólafs helga i fónsbók 1578
hægri hendi og hcfir steinana þrjá liggjandi í lófanum, hvern of-
an á öðrum.
Menn vita cinnig, hvernig á þcssum steinum stendur. Þeir voru
gerðir í minningu einnar af jarteinum Ólafs konungs, þegar brauð
urðu einu sinni að steinum hjá einum greifa í Danmörku, scm
ekki vildi tigna Ólafsmessudag, og skipaði vinnukonu sinni
að baka brauð á þessum degi, en hún var frá Noregi og hélt
fast við helgi Ólafs konungs. Þessvegna mun það og vera eflaust,
að steinarnir sé lagaðir eins og brauðhleifar hafa vcrið að fornu,
með þykkum röndum og bolla í miðju.“
Hinn ágæti höfundur vísar nánar til, hvar frásögnin um þessa
jartein er að finna, en hana má m. a. lesa í Flateyjarbók II, útg.
1945, bls. 497. Þetta er hin eina heimild um Ólafssteina, er ég
þekki. Jón forseti hefur væntanlega búið til heitið Ólafssteinn, og
vart er þess að vænta, að heimildir séu fyrir hendi um Ólafssteina
í miðaldamáldögum. Hér skal þó haft fyrir satt, að til hafi verið
Ólafssteinar, gerðir í minningu um fyrrgreinda jartein.
Árið 1964 afhcnti Vigfús Sigurðsson á Ásólfsskála undir Eyja-
Goðasteinn
85