Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 88
íjöllum byggðasafninu í Skógum bollastein, scm þar hafði geymzt
í húsum um nokkur ár og fundizt við jarðrask á hinu forna bæjar-
stæði. Heimafólkið nefndi hann í gamni og alvöru hlautbolla,
eins og víða hefur verið siður til á Islandi um áþekka bollastcina,
grunna eða djúpa. Ekki ieizt mér stcinninn þesslegur, að hann
hefði komið nærri heiðnu blóði en vart loku fyrir skotið, að hann
hefði verið ljósakola. Steinninn sjálfur mælti þó gegn þeirri skoð-
un. Ljósakolur úr steini eru yfirleitt heldur auðþekktar. Flestar
bera þær merki þess að hafa borið eld, sem breytt hefur lit
stcinsins og iitað hann ljósreyk. Margar ljósakolur eru með klöpp-
uðum tanga, ti.1 að nota sem hald í daglegri notkun, og ekki ótítt,
að klöppuð sé vör í kolubrúnina fyrir kveikendann, sem ljósið log-
aði á, til að hvíla í. Feitar- eða kveikþró kolunnar þarf líka að
ná einhverri lágmarksdýpt til þess að hún réttlæti koluheiti í
munn.i safnmanns, sem handfjatlar og greinir hlutinn. Þarna er
þó komið inn á svið, sem aldrei hefur verið rannsakað svo hcitið
geti, laus ágizkun oft ráðið mati og greiningu.
Bollasteinninn frá Ásólfsskála er nokkuð óreglulega lagaður en
nálgast þó að vcra kringlóttur, mesta þvermál um 15,5 cm, minnsta
þvermál um 14 cm. Flatvegur er höggvinn neðan á steininn. Hæð
stcinsins upp á barm cr um 8,5 cm. Mesta dýpt skálar er um 1,4
cm, þvermál skálar um 11 cm. Þyngd steinsins er 3,9 kg. Efni
hans cr blágrýti. Hann hlaut safnnúmer 2168. Hvergi vottar fyrir
clds- eða sótlit á steininum, ekki er heldur feitarvott að finna í
skálinni. Þykkt steinsins, miðað við dýpt skálar, mælir líka gegn
því, að hér sé um ljósakolu að ræða. Lýsing Jóns forseta á Ólafs-
stcini mælir með því, að hér sé steinn, sem hafi líkingu af brauð-
hlcifi, og væri þetta þá neðsti Ólafssteinninn af þremur.
Á Ásólfsskála var Ólafskirkja í kaþólskum sið, og vígt hús
stóð þar fram undir lok 16. aldar. Fyrsti máldagi kirkjunnar er
hcimfærður til 1179 í Fornbréfasafni.
Því mætti bæta hér við, að úr fórum Vigfúsar Sigurðssonar á
Ásólfsskála fékk byggðasafnið eitt miðaldainnsigli, er fundizt
hafði þar á bænum. Bcr það latínuáletrun, er Magnús Már Lárus-
son prófessor hefur ráðið: Innsigli Sigurðar Vigfússonar. Hér hafa
þá komið í leitir tveir miðaldagripir frá bæ Ásólfs alskiks. Urn
86
Goðasteinn