Úrval - 01.12.1976, Qupperneq 8
6
ÚRVAL
Gable var samningsbundinn hjá
M-G-M. Eftir samningaviðræður náði
M-G-M sér eftir þá skyssu að hafa
hafnað sögunni með því að sam-
þykkja að lána Selznick leikarann og
leggjafram 1.250.000 dollaraí fram-
leiðslukostnað. í staðinn fékk M-G-M
dreifingarréttinn og prósentur af
ágóðanum. Selznick hafði neyðst til
að láta af hendi helminginn af mynd
sinni til að fá stjörnuna, sem honum
fannst ómissandi ef vel átti að takast.
En að finna stjörnu til að leika
Scarlett var allt annað mál. Þó úr
fjölmennum hópi væri að velja —
það var varla sú Hollywood leikkona
til, sem ekki var sannfærð um, að
hlutverkið væri eins og skrifað fyrir
hana — voru þessar stjörnur fremur
konur en stúlkur, og sá ferskleiki,
sem Selznick leitaði að, var ekki
til hjá þeim. Svo hann ákvað
að skapa sína eigin stjörnu.
Leitin að Scarlett átti eftir að
verða frægasta og umfangsmesta
hæfnisleit sögunnar. Símhringingar
og bréf skullu eins og flóðbylgja á
kvikmyndaverinu. Stúlkur komu í
vagnhlössum, og fóru fram á reynslu-
myndun. Skrýtnasta atvikið í leitinni
gerðist á jóladag, 1937, þegar geysi-
stór pakki, umvafmn kápunni af
A hverfanda hveli, var afhentur á
heimili Selznicks. Pakkinn var opn-
aður og úr spratt stúlka í fyrirstríðs-
búningi. „Gleðileg jól, hr. Selznick
— ég er yðar Scarlett O’Hara!”
Meðan leitinni að Scarlett var
haldið áfram, hófst taka myndar-
innar, bókstaflega með auglýsinga-
báli. Enda þótt Sherman tæki ekki
Atlanta fyrr en í lok bókarinnar,
var bruni borgarinnar myndaður
fyrst. Að kvöldi þess 10. des. 1938,
tóku að berast símtilkynningar til
yfirvalda (frá útbreiðslustjóra Selz-
nicks) um að baklóð Selznick væri í
ljósum loga. Fréttamenn komu á
vettvang meðan eldurinn var sem
ákafastur — það var mesta bál, sem
sett hafði verið á svið í sögu kvik-
myndanna. Á meðan logar og reykur
steig upp af um fjómm ekmm af
skrælþurmm kumböldum, vom þrír
staðgenglar Scarlett og hvítklæddur
Rhett mynduð flýjandi á geithafra-
kerm frá brennandi borginni.
Þegar síðasta brennandi húsið var
fallið, kom Myron Selznick, bróðir
framleiðandans, á vettvang ásamt
kvöldverðargestum sínum. „Dave”,
sagði hann, „ég vil kynna þig fyrir
Scarlett O’Hara”.
t dvínandi bjarmanum frá eldin-
um varð David Selznick sér meðvit-
andi um stór, grágræn augu, foss-
andi, brúnt hárflóð og grannvaxna
persónu. Mörgum ámm seinna skrif-
aði Selznick um þennan fyrsta fúnd
við Vivian Leigh: „Ég leit einu sinni
á hana, og varð ljóst, að hún var sú
rétta.”
Sex dögum fyrir jól var þessi breska
leikkona, svo til ókunn amerískum
áhorfendum, reynslumynduð í síð-
asta sinn. Selznick og félögum hans
fannst mikið til um ástríðufullan