Úrval - 01.12.1976, Page 124
122
ÚRVAL
Sunnyvale í Kaliforníufylki, þegar
við virtum fyrir okkur verkfrxðinga,
sem bogruðu yfir teikningum, sem
voru á stærð við stóreflis gólfteppi.
Þessar teikningar minntu helst á
risavaxin kort, þar sem gat að líta
þúsundir þjóðvega, botnlanga,
vegamóta og dularfullra vega, sem
smábreikkuðu. Teikningarnar voru
sxðan smækkaðar með hjálp ljós-
myndatækninnar, þangað til þær
voru orðnar á stærð við smásnifsi.
Síðan voru þær fjölframleiddar í þús-
undatali á plastfilmu og lagðar sem
yfirlög á silikonþynnur.
Svo voru þessi örsmáu, flóknu
mynstur endanlega grafin á silikon-
plöturnar með sýru og plöturnar voru
síðan bakaðar eins og pínulitlar
kökur í röðum í ofnum, þar sem var
mjög hátt hitastig. Kemiskum
aðskotaögnum, sem höfðu sérstaka
rafeindaeiginleika, var bætt við, um
leið og plöturnar voru bakaðar. Þegar
bakstrinum var-.lokið, hafði hver af
þessum örlitlu silikonplötum að
geyma fullkomlega mataðan reikni-
heila. Loks var sett plasthylki utan
um heilann og hann festur við raf-
hlöðu, talnaborð og ,,LED-readout”
(aflestrarútbúnað) með hjálp örfínna
gullþráða.
Engar tvær gerðir af vasatölvum
eru nákvæmlega eins, og því ættuð
þið að líta vel í kringum ykkur í leit
að þeirri tölvu, sem fullnægir best
þörfum ykkar, áður en þið festið
kaup. Fyrir flesta nægja vasatölvur
þær, sem kosta undir 20 dollurum og
geta lagt saman, dregið frá, deilt og
margfaldað. Ef þið æskið aukinna
vinnslumöguleika, skuluð þið kaupa
vasatölvu, sem sýnir 8 stafa tölu og
hefur færanlega aukastafi. Það er líka
gagnlegt, að tölvan hafi „tactile
feedback”, þ.e. að það heyrist lítill
smellur, þegar þið ýtið á hnappana
svo að þið séuð alveg viss um, að þið
hafið örugglega ýtt hverjum hnapp
niður. „Constant” (stöðugur)
hnappur á vasatölvunni gerir ykkur
líka mögulegt að margfalda og deila
síðan með einni tölu, en slíkt er
hagkvæmt, þegar þið þurfið að fram-
kvæma gengisútreikning á ferðalög-
um ykkar erlendis.
Ef þið þarfnist þess að skrifaðar
tölur fylgi útreikningum ykkar, þá
eru til vasatölvur sem skila renning-
um með árituðum tölum, en þá er
verðið líka komið upp f 100 doll-
ara eða meira. Vasatölvur, sem
notaðar eru í atvinnuskyni og leysa
flókin viðfangsefni á sviði rúmfræði,
tölfræði eða fjármála, eru yfirstétt
vasatölvanna, en þær ksota frá 70
dollurum allt upp í 795 dollara. En
hvert svo sem val ykkar verður, þá
er viturlegast að halda sér við þekkt
vörumerki til þess að tryggja sem
auðveldasta þjónustu.
En það er á sviði menntunar og
fræðslumála, sem vasatölvurnar hafa
einna mesta möguleika, enda hafa
þær líka valdið mestu fjaðrafoki þar.
I fyrstu var vasatölvunum útskúfað
á því sviði og var sagt, að þær væru
bara hækjur fyrir nemendurna. Þeir,
sem héldu slíku fram, óttuðust, að sú
staðreynd, að það var svo auðvelt að
fá rétt svör við reikningsdæmum
með hjálp þeirra, mundi jafnframt
verða til þess að gera heila kynslóð
ófæra um að leysa hin auðveldustu