Alþýðublaðið - 28.01.1920, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.01.1920, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 ttér þótt einna vænst um hana. Hún er nú ekki hér á landi. Hvar eg sé fæddur? Eg er úr Tlóanum, eins og fleiri góðir menn. Hvort við Einar Jónsson mynd- ^öggvari séum skyldir? Jú, það er svo, við erum systkinabörn“. Og þar með lauk viðtalinu. Bela Kun. Þess hefir áður verið getið hér i blaðinu, að bolsivíkaforinginn ungverski, dr. Bela Kun, væri flúinn. Þetta mun samt ekki vera rétt, því til Wien hefir borist Þartur úr loftskeyti til utanríkis- ráðuneytisins frá utanríkisráðu- Keytinu í Moskva, þar sem sagt er, að líf austurrískra fanga i Rússlandi sé undir því komið, að Bela Kun og aðrir ungverskir bolsivíkar séu ekki afhentir Ung- verjalandsstjórninni. + Ijernaðarsambanð Tékka og Austurríkismanna. Fyrir nokkrum dögum barst hingað skeyti um það að Austur- ríki (sem er bygt Þjóðverjum) og Tékkóslóvakia hefðu gert með sér hernaðarsamband, til árása og varna. Mörgum mun hafa komið þessi fregn undarlega fyrir, því meðan keisaradæmið Austurríki hélst, var Jafnan mjög grunt á því góða °úlli Tékka og Þjóðverja, og ekki katnaði samkomulagið eftir að keisaradæmið leystist í sundur, við landaskiftinguna var geng- svo mjög á rétt Austurrlkis, að stórir alþýzkir landskikar, sem að réttu lagi hefðu átt að fylgja tví. voru lagðir til Tékkóslóvakiu, °S réðu því Bandamenn. Orsökin til þess að þessi tvö Iönd sem verið hafa fjandsamleg kvort í annars garð, gera nú banda- laS. er hræðslan við Ungverjaland. ^*ar í landi hafa nú völdin eftir aö stjórn Bela Kun lél), hinir Jömmustu afturhaldsmenn (aðal e8a hinn svonefndi kristilegi bændaflokkur) og hafa Ungverjar látið ófriðlega í garð Austurríkis og Tékka upp á slðkastið þó þeir séu nú sjálfir nýsloppnir undan hramminum á Rúmenum. Tékkar óttast uppreist í eystra hluta ríkis síns, þess er áðu heyrði undir Ungverja, og búast við að Ung- verjar styðji uppreistina. Um daginn 09 yeginn. ógildir peningaseðlar eftir þessi mánaðamót: Fjólulitir 50 kr. seðlar, útgefnir samkv. tilsk. 25. okt. 1883 og 21. apríl 1904. Gráir 10 kr. seðlar, útg. samkv. tilsk. 27. maí 1891 og 21. apríl 1904. Grábláir 5 kr seðlar, útg. samkv. tilsk. 10. sept. 1898 og 21. apríl 1904. Dökkrauðir krónuseðlar (oft nefndir „kaffirótarseðlar" hér á landi), útg. samkv. tilsk. 15. ág. 1914 Flýtið ykkur að fá seðlum þess- um skift í bönkunum fyrir helgina. Money. Svar til Jón Björnssonar frá Dalvík, frá Ingólfi Jónssyni frá Akureyri, verður í blaðinu á morgun. Yísir og „Títan“, Visir fer í gær lofsamlegum orðum um sér- prentun af ritgerð, sem á að birt- ast í Skírni! eftir Klemenz Jóns- son fyrv. landritara, núverandi form. fossafélagsins „Títan". Grein þessi heitir „Hvenær er Jón Ara- son fæddur?" og gengur út á að sanna það sama sem Barði Guð- mundsson skólapiltur benti á í Lögréttu fyrir skemstu, sem sé það að Jón hljóti að vera fæddur íyrr en alment er talið (1484). Mikið liggur manninum á og er þetta vottur um lofsverða um- hyggju fyrir uppfræðslu almenn- ings. En sumum finst að áður hefði andað svalar í garð greinar- höf. úr því horni. X Aí pósthúsinn. Þórður kom í gær um hádegi inn á póathúsið; hann var með bréf í hendinni og ávarpaði póstþjóninn á þessa leið: „Ef eg læt þetta bróf í póst- kassann núna, verður það þá Ágælur sliinnjakki til sölu og sýnis á afgr. Alþbl. komið inn á Grettisgötu kl. 10 í kvöld?* Póstþjónninn: Já. Þórður: Er það alveg áreiðan- legt? Póstþjónninn: Já, það er alveg áreiðanlegt. Þórður: Ja, þá læt eg það ekki í kassann, því það á að fara vest- ur á Bræðraborgarstig! Og með það fór hann út. Bæjarstjórnartainpar í Testmannaeyjum. Bæjarstjórnarkosningar fóru ný- lega fram í Vestmannaeyjum. Alls eru í bæjarstjórn þar 9. Þrír gengu úr nú um nýárið (eftir hlutkesti) en það voru Jóhann Jó- sefsson kaupm., Jón Hinriksson kaupfélagsstj. og Þórarinn Árna- son bóndi. Frír listar voru við kosninguna. A. -lisii: Gísli Lárusson, kaupfél.stj. Jón Guðmundsson, bóndi. Kristjánlngimundarson, fiskmatsm. Þessi listi var frá „Skeggja*- flokknum. (Heimastjórnarfl. 1). B. -listi: Jóhann Jósefsson, kaupm. Símon Egilsson, útvegsbóndi. Jón Hinriksson, kaupfél.stj. Þessi listi var frá Sjálfstæðisfl. í Vestm.eyjum (sem mótstöðum. kalla „Tanga“-klíkuna). C. -listi: Jón Hinriksson, kaupfél.stj. Guðlaugur Hansson, verkam. Jóhann Jó3efsson, kaupm. Listinn var frá Verkamanna- félaginu. Kosningin fór þannig að „ Skegja“ -flokkurinn kom engum að; Tangamenn komu að tveimur (Jóh. Jósefssvni kaupm. og Símoni Eyjólfssyni); verkamenn komu að efsta manni á sínum lista. Þórarni Árnasyni var ekki teflt fram aftur vegna veikinda hans, en þótti annars mjög nýtur í bæjarstjórn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.