Úrval - 01.01.1979, Blaðsíða 36

Úrval - 01.01.1979, Blaðsíða 36
34 nota skal með gúmmístakknum þegar rannsakaðir eru sjúkdómar á borð við gin- og klaufaveiki. Hann fékk bununa beint ofan í hvirfilinn. ,,Heyrt hef ég að hland sé gott fyrir húðina,” sagði lögreglumaðurinn grafalvarlegur. ,,Eg er farinn,” hreytti Tompkins út úr sér. ,,Hér er engin gin- og klaufaveiki. Ráðuneytið skiptir sér ekki frekar af málinu. Og hann sullaðistí burtu. ,Jæja, Herr Hopfer,” sagði ég. ,,Segðu mér nú alla söguna.” ,,I morgun rann svona út úr henni. Hún vill ekki éta, ekki drekka. Kannski með slæma tönn.” Já, tannpína var hugsanleg. Ég lét Hopfer láta Gerðu opna ginið aftur og lýsti vandlega á hverja tönn fyrir sig með ljósinu í annarri hendi en ýtti niður hálli tungunni með hinni. Ég þreifaði á eitlum hennar, renndi höndinni yfir hálsinn að utan, mældi í henni hitann og tók blóðsýni. Allt var eins og það átti að vera. En slefan úr henni rann og rann. „Færðu mér nokkra banana og fötur af vatni,” sagði ég við Hopfer. Mig langaði að sjá með eigin augum hvernig hún hegðaði sér við mat. Gerða tók við afhýddum banana með rananaum, stakk honum upp í sig og kingdi. Svo kom banana- maukið hægt og hægt til baka með munnvatnsrennslinu og lak út úr henni. Ég lét vatnsfötuna fyrir framan hana. Hún saug þegar í stað fullan rana og spýtti úr honum upp í ÚRVAL sig. Andartaki siðar helltist vatnið út úr henni. ,,Með hverju fóðraðir þú fílana síðast í gær, Herr Hopfer? ’ ’ ,,Söxuðum gulrótum og eplum. ’ ’ Ég þóttist nú viss um, að epli hefði komist fram hjá tönnunum og sæti nú fast einhvers staðar í svelgnum. Það gat verið á einhverjum þriggja staða í vélindanu: þar sem það liggur ofan í brjóstholið, þar sem það fer yfir hjartað eða þar sem það liggur í gegnum þindina. En hvar sem það nú var, var Gerða hætt komin. I nautgripum losnar svona stífla oft af sjálfu sér, ef skepnan fær að vera í friði í sólarhring. Það var mín fyrsta von, að eins færi hjá fílnum. Ég fékk mér herbergi á næsta hóteli, eftir að hafa búið svo um hnútana að Gerða hefði nóg vatn. Kannski myndi eitthvað leka framhjá eplinu. En daginn eftir var Gerða miklu verri. Augun voru sokkin, hún var máttfarin og leið bersýnilega af vökvaskorti. Hvernig gat ég hreyft þetta epli? Þótt ég gæti einhvern veginn ýtt á það, átti ég á hættu að rífa vélindað. Það var óhugsandi að skera hana upp, það var engin sú vél, sem gæti haldið lofti í lungum þessarar sex tonna hlussu, meðan brjóstholið væri opnað. Þriðja daginn voru augu Gerðu orðin rauð. Hún var viðurstyggilega andfúl og munnvatnsflæðið hafði ekkert minkað. Hún var yfir sig þyrst. Ég tók að gefa henni inngjaflr í enda- þarm á klukkustundar fresti, reyndi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.