Úrval - 01.12.1980, Side 34
32
ÚRVAL
neyslu í Bretlandi sjálfu. Samkvæmt
opinberum skýrslum eru um 4000
eiturlyfjaneytendur í Bretlandi, en
reyndir félagsfræðingar telja sönnu
nær að áætla fjölda þeirra að minnsta
kosti fjórum sinnum meiri.
Stöðugur eltingaleikur
Þetta ástand veldur yfirvöldum
slíkum áhyggjum, að tollgæslan
hefur nú fengið aukinn liðsstyrk og
meira fé til þess að kljást við vand-
ann. Sérstaklega þjálfaðir starfshópar
eru að störfum í höfnum skipa og
flugvéla. Þeir njóta aðstoðar þef-
hunda, sem reynst hafa ómetanleg
hjálp. Einn þessara hunda er svartur
Labrador, kallaður Brumby. Hann á
heiðurinn af uppgötvun eiturlyfja
fyrir andvirði 500.000 sterlingspunda
á tveimur árum. Auk þess hafa þessir
séræfðu hópar sjö hraðbáta til
umráða, sem einnig hafa sannað
ágæti sitt. í september á síðasta ári
lentu fjórir þeirra í æðisgengnum
eltingaleik við smyglbát út af
Cornwall. Þeir höfðu betur, og
afraksturinn varð eiturlyf fyrir and-
virði 5 milljón punda.
Hinir sérþjálfuðu tollgæslumenn
helga sig þessu verkefni svo algjör-
lega, að þeir láta sig ekki muna um
170 klukkustunda ógreidda auka-
vinnu á mánuði. Þeir bera engin
vopn, þrátt fyrir þá miklu hættu, sem
starfið hefur í för með sér, svo sem
sannaðist í október á síðastliðnu ári,
þegar 32 ára gamall starfsmaður
tollgæslunnar, sem vann að rannsókn
á smygli hálfs annars tonns af
kannabisefnum frá Asíu, var skotinn
til bana á götu í London.
Aðalstöðvar þeirra á horni Fleet
Street í London eru jafnframt
miðstöð alþjóðanjósnakerfis, sem
tekur til Hong Kong, Karatchi,
Tangier, Teheran og fleiri höfúðstöðva
þessa ábatasama, en óhugnanlega
atvinnuvegar, sem eiturlyfjasmyglið
er.
Nýlega komst tollgæslan á snoðir
um smyglarakeðju, sem átti upptök
sín í Bangkok, en lokahlekkurinn var
virt verslunarfélag í London. Kanna-
bisefninu var smyglað þannig, að þvl
vafíð utan um bambusstafi. En
bambusstafirnir komu ekki beina lejð
frá Bangkok. Til þess að gera tollgæsl-
unni erfiðara fyrir, var hafður
viðkomustaður einhvers staðar í
Evrópu, og þaðan var vörunni síðan
smyglað til Bretlands eftir leiðum,
sem ekki voru líklegar til að vekja
grunsemdir.
Erindi sem erfiði
Rannsóknarmenn tollgæslunnar
fylgdust lengi með þeim sem þeir
grunuðu um þátttöku í þessu smygli,
og í ljós kom, að þeir ferðuðust oft frá
Bangkok gegnum Róm til Genfar.
Nú var myndað samstarf við
svissnesku lögregluna, og síðan var
beðið átekta, uns einn hinna
grunuðu átti erindi til Genfar. Hann
var síðan eltur frá flugstöðinni til
járnbrautarstöðvarinnar, þar sem