Úrval - 15.12.1980, Side 112
110
ÚRVAL
Feneyjar orðnar lítið annað en losta-
fullur leikvangurauðkýfinga Evrópu.
Árið 1846 er svo endanlega
bundinn endi' á einangrun Feneyja
með tilkomu járnbrautarbrúar sem
tengdi þær meginlandinu í fyrsta
skipti. Tuttugu árum síðar sameinast
svo hinar forn eðalbornu Feneyjar
hinu nýstofnaða konungsríki Itaiíu.
Þar með höfðu Feneyjar fært sig niður
af hinum sögulega stalli og voru nú
sem hver önnur héraðs-höfuðborg.
Með þessu staðfestu þær goðsögnina
um sína eigin raunasögu og það að
þær væru ofsóttar af eigin hverfandi
mikilleik.
Feneyjar eru samt engan veginn
steinrunnar. I dag eru þær
blómstrandi nútímaborg, sem
staðsett er í sögulegri og yndislegri
umgjörð. I Rialto þrífast kjöt-,
grænmetis- og fískmarkaðirnir 1
sínum upprunalegu, 16. aldar boga-
göngum. Hversu sögulegar sem
byggingarnar í Feneyjum eru þá
standa þær aldrei ónotaðar. Glæsi-
legar hallir eru nýttar sem höfuð-
stöðvar lögreglunnar, bæjarráðshús,
hótel, sýningarsalir, skrifstofur eða
jafnvel sem rbúðarhúsnæði.
Hvernig gengur svo Feneyingum
að lifa í listaverki? Ágætlega, þakka
ykkur fyrir. Lausir við verksmiðjur,
vegi og umferðargný, njóta þeir
daglega munaðar, friðar og kyrrðar.
Feneyingar þurfa ekki heldur að
kvarta undan hinni stjórnlausu
endurskipulagningu sem fer nú eins
og eldur í sinu um aðrar borgir, þvl
stór hluti borgarinnar er þjóðlegt
minnismerki og fæst húsanna má af
þeim sökum snerta.
Auðvitað er það ekki með öllu
gallalaust að búa í Feneyjum. Einn
gallinn er til dæmis hið mjög svo
gallaða skolpræsakerfi borgarinnar,
en skolpinu er dælt beint út í síkin og
við það myndast óneitanlega and-
styggilegur fnykur. Annað vandamál
er hinn stöðugi ferðamannastraumur,
en í Feneyjum er hann önnur aðal-
atvinnugreinin, næst á eftir skipaút-
gerð. Á hverju ári koma 5 milljónir
ferðamanna til Feneyja.
Erfiðasta vandamálið er samt
ónefnt, en það er viðhald húsa.
Hættulegur raki síkjanna hefúr um
aldaraðir verið versti óvinur
bygginganna. Saggi er kominn í
undirstöður húsa, marmaraveggir
eru víða sprungnir, steinar molnaðir
og svona mætti lengi telja. Út frá
íbúðarlegu sjónarmiði eru
vandamálin líka mörg: Næstum 58%
íbúðarhúsnæðis hefur enga
miðstöðvarhitun og nútíma-
baðherbergi heyra undantekningun-
um til. Þar að auki eru geysimargar
íbúðir á jarðhæð óíbúðarhæfar sökum
raka. Meir en þriðjungur íbúa
Feneyja hefur á síðastliðnum 30 árum
flúið yfir sundið vegna þessara
ástæðna.
Satt er það, að ef þú hlustar á
böisýnisi nnina, þá eru Feneyjar að
hruni komnar. Sagt er að undirstöður
þeirra, þessar milljónir lævirkjatrjá-
stólpa séu að eyðast. Mengunarský frá