Úrval - 01.01.1982, Side 6
4
ÚRVAL
barnið sem þau höfðu misst alla von
um að eignast. ,,Við vitum að hún
gerði það af mannkærleika,” segir
kjörmóðirin sem segir líka að sonur
hennar sé lifandi eftirmynd föður
síns. Og það er svo sem ekkert skrýtið
því faðir hans er jafnframt líf-
fræðilegur faðir hans.
Elizabeth Kane er meðgöngumóðir
(surrogate mother). Hún féllst á að
verða tæknifrjóvguð með sæði manns
sem átti óbyrju fyrir konu. Hún fékk
ótiltekna fjárhæð fyrir að láta frjóvga
sig, bera barnið undir brjóstum í níu
mánuði og afhenda sæðisgjafanum
og konu hans barnið þegar við
fæðingu.
Það var frjótæknir í Louisville sem
valdi Elizabeth til að bera þetta barn.
Frjótæknir þessi býður upp á þá
þjónustu að velja meðgöngumóður
sem best hæfl þeim foreldrum sem
barnið hljóta við fæðingu.
,,Samkvæmt lögum Kentucky orkar
þjónusta af þessu tagi mjög tvímælis,
ekki síður en hin mannfræðilega og
siðferðilega hlið þessa atferlis,” segir
Joseph Johnson aðstoðarsaksóknari.
Saksóknarinn í Kentucky hefur nú
höfðað mál á hendur þessati frjó-
tækniþjónustu og krafist þess að hún
verði svipt starfsleyfi. Að hans dómi
er þetta „hvorki meira né minna en
verslum með börn’ ’.
Ekki vantar það að sögulegt
fordæmi er fyrir þvt að utan-
aðkomandi mæður komi til hjálpar ef
þeirri réttu tekst ekki að ala börn.
Þegar Abraham vildi eignast erfingja
gaf Sara kona hans, sem var óbyrja,
honum unga, egypska þernu, Hagar.
Og þar var engin tæknifrjóvgun á
ferðinni — Abraham skrapp ein-
faldlega í tjaldið til Hagar.
Enginn veit með vissu hve margar
konur hafa þjónað sem meðgöngu-
mæður á okkar tímum. En fyrir um
fimm árum fóm auglýsingar eftir með-
göngumæðmm að birtast í smáaug-
lýsingum blaða víðs vegar um
Bandaitkin.
Vinargjöf
Margir eiga erfitt með að skilja
þetta fyrirbrigði. Hvers vegna skyldi
kona vilja eignast barn fyrir hönd
annarrar konu? Hvernig fær kona sig
til þess af ásettu ráði að verða ófrísk,
þola morgunógleði og önnur
óþægindi sem þungun fylgir, fínna
líkamann þenjast út og nýtt líf
hrærast innra með sér, undirgangast
tilfinningalegt og líkamlegt uppnám
fæðingar — allt til þess að önnur
kona geti fengið barn í fangið?
Ástæðurnar em margbreytilegar.
Eiizabeth Kane segist hafa orðið með-
göngumóðir vegna þeirrar miklu
samúðar sem hún hafi með konum
sem ekki geta átt börn. Hvorki
Elizabeth né maður hennar kusu að
eignast fleiri börn sjálf en þegar hún
las um meðgöngumæður flaug henni
í hug: Hvers vegna ætti ég ekki að
hjálpa einhverri konu sem ekki getur
átt böm sjálf 7 Og þótt Elizabeth væri
orðin 37 ára, tiltölulega gömul til að